Auknar öryggisráðstafanir vegna mótmæla á Ítalíu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 24. febrúar 2018 18:53 Til átaka kom á milli mótmælenda og óeirðalögreglunnar á Ítalíu í dag. visir/afp
Yfirvöld á Ítalíu hafa stóreflt löggæslu í borgum vegna vaxandi hörku í mótmælum þar í landi. Ríkisstjórnin hefur kallað út þúsundir lögreglumanna til að standa vaktina á mótmælum auk þess sem óeirðalögreglan hefur verið kölluð til að því er fram kemur á vef BBC. Þjóðernissinnar, sem staðsetja sig yst til hægri á hinu pólitíska litrófi, annars vegar og andfasistar hins vegar hafa blásið til mótmæla sem fara fram í dag í Róm, Mílanó og Palermó. Yfirvöld gera ráð fyrir að allt að tuttugu þúsund manns fjölmenni á mótmælin sem hingað til hafa einkennst mjög af hörðum átökum á milli hópanna tveggja. Loft er lævi blandið á Ítalíu þegar skammur tími er til þingkosninga en Ítalir ganga til kosninga þann 4. mars.Andfasistar mótmæla Norðurbandalaginu þegar örstutt er til þingkosninga á Ítalíu.visir/afpTil átaka kom á milli andfasista og óeirðalögreglunnar í Mílanó í dag á mótmælum sem beinast gegn stjórnmálaflokknum Norðurbandalaginu sem þekktur er fyrir harða stefnu í innflytjendamálum. Óeirðalögreglan girti af svæði og beitti kylfum. Fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Matteo Renzi, hefur boðað komu sína á mótmælin sem fara fram í höfuðborginni í dag en hann mun flytja ræðu undir yfirskriftinni „aldrei aftur fasismi“.
Tengdar fréttir „Skellum skuldinni á yfirvöld en ekki innflytjendur“ Íbúar Macerata er slegnir óhug vegna árásar á innflytjendur. 11. febrúar 2018 11:15 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira
„Skellum skuldinni á yfirvöld en ekki innflytjendur“ Íbúar Macerata er slegnir óhug vegna árásar á innflytjendur. 11. febrúar 2018 11:15