Reiðver efnafólks voru prýði Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 25. febrúar 2018 21:00 Eva Kristín Dal er ánægð með að hin skrautlegu reiðver skuli dregin fram úr geymslum og sýnd almenningi. Vísir/Ernir
Sýningin Prýðileg reiðtygi í Bogasal Þjóðminjasafnsins ber þess ótvíræð merki að söðull með viðeigandi búnaði var verðmæt eign. Eva Kristín Dal, verkefnastjóri í Þjóðminjasafninu, er að stilla upp viðhafnarreiðverum í Bogasalnum. Hvernig datt henni þetta í hug? „Það er nú hún Lilja Árnadóttir sem er sýningarhöfundur en í safnkosti Þjóðminjasafnsins er mikið af fallegum reiðtygjum varðveitt og það er gaman að leyfa gestum að njóta þess að skoða þau.“ Þarna er úrval skreyttra söðla, söðulábreiða, mynstraðra reiða og ýmissa fylgihluta þessa forna búnaðar. Í sumum tilfellum er nafn fyrsta eiganda eða upphafsstafir grafið í söðulinn eða saumað í söðuláklæðið. „Það var mikið lagt í þessi reiðtygi,“ segi Eva Kristín með aðdáun og bendir á ótrúlegar myndir sem koma fyrir í málmskreytingum, blómstrandi jurtir, framandi dýr og furðuskepnur, svo og mótív úr Biblíunni eins og Eva og höggormurinn. „Mynstrin hljóta að hafa borist hingað til lands að utan en smíðin er íslensk,“ segir hún. Reiðfæri bæði karla og kvenna hétu söðlar áður fyrr, að sögn Evu Kristínar. „Karlasöðlarnir voru þannig að menn sátu klofvega í þeim, eins og hnökkum, en orðið hnakkur kom ekki inn í málið fyrr en á 19. öld. Kvensöðlarnir skiptast í tvær gerðir, hellusöðla og klakksöðla. Í hellusöðlunum sátu konur þannig að þær sneru nánast alveg út á hlið. Þeir voru í notkun fram á 19. öld, þá tóku klakksöðlarnir við, líka kallaðir enskir söðlar. Í þeim situr reiðkonan þannig að hún snýr skáhallt fram á við og það er þægilegra. Við fengum reiðkonu til að ríða í klakksöðli fyrir okkur. Hún sagði að það þyrfti við það ákveðið lag. Dálítið reyndi á miðjuna og mikilvægt væri að vera á þýðum hesti.“ En höfðu konur söðuláklæðin yfir sér eða sátu þær á þeim? „Áklæðin voru lögð yfir hellusöðulinn og sveifina, svo vöfðu konur þeim um fætur sér. Þau voru þannig bæði til hlífðar og skrauts,“ svarar Eva Kristín. Í tengslum við sýninguna kemur út samnefnd bók, Prýðileg reiðtygi, þar sem skrifað er um söðla og söðuláklæði og margar myndir birtar. Höfundar eru Ingunn Jónsdóttir, Ragnheiður Björk Þórsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir og ritstjóri er Anna Lísa Rúnarsdóttir.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Lífið samstarf Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Leikjavísir Fleiri fréttir Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira