Skoðun

Af hverju ertu Pírati?

Valgerður Árnadóttir skrifar
Ég er í framboði til prófkjörs Pírata í borginni og ég er mjög oft spurð hversvegna ég er pírati en ekki vinstri græn eða samfylkingarkona því fólk þekkir mig fyrir að vera umhverfisverndarsinnuð, femínisti og vegan baráttukona og finnst ég eiga frekar heima í flokki sem auglýsir sig sérstaklega „umhverfisverndarflokk” eða „femínistaflokk”.

En ég er pírati, vegna þess að hjá Pírötum sameinast allt sem ég hef trú á, píratar eru allskonar, með ólíkan bakgrunn og af báðum kynjum en við eigum það sameiginlegt að trúa á lýðræði, gagnsæji í stjórnsýslu og að við berjumst gegn spillingu og frændhygli.

Það er enginn annar flokkur sem hefur jafn ötullega barist fyrir nýrri stjórnarskrá og staðið vörð um lýðræði okkar á öllum vígstöðvum. Píratar pönkast í þeim sem misnota aðstöðu sína og völd og er nokk sama um vinsældarkeppnir eða pólítíska leiki.

Leyfið mér að taka nýleg dæmi:

Gagnsæi:

Ef Björn Leví hefði ekki sóst eftir upplýsingum um greiðslur til þingmanna, meðal annars vegna aksturskostnaðar myndum við ekki vita að Ásmundur Friðriksson fékk 4,6 milljónir í fyrra í aksturskostnað eða að endurskoða þurfi greiðslur til þingmanna og hafa þær aðgengilegar fyrir almenning til að koma í veg fyrir misnotkun á almannafé.

Sanngirni:

Kjararáð ákvað að hækka laun alþingismanna og ráðherra um 36-44%  á einu bretti og Jón Þór pírati og þingmaður ákvað að stefna kjararáði ásamt VR stéttarfélagi fyrir þessa hækkun þar sem hún er úr öll­um takti við al­menn­ar hækk­an­ir á vinnu­markaði. Þess er kraf­ist að ákvörðunin sem stefn­ir stöðug­leika á vinnu­markaði í bráða hættu verði taf­ar­laust ógilt með dómi. Þingmenn annarra flokka virtust bara sáttir með þessa launahækkun og ætluðu ekkert að aðhafast.

Réttlæti:

Ef Helgi Hrafn og aðrir þingmenn pírata væru ekki enn að pönkast í Sigríði Á Andersen fyrir að brjóta lög þá væru allir búnir að gleyma því, en þau munu ekki hætta, þau leyfa fólki ekki að gleyma því að manneskja í æðsta embætti dómsmála er sek um lögbrot en situr þó enn undir verndarvæng VG og Sjálfstæðismanna.

Virðing:

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, er formaður velferðarnefndar Alþingis og hefur lagt fram tvenn frumvörp um breyt­ing­ar á lög­um um al­manna­trygg­ing­ar sem eiga að miða að aukn­um rétt­ind­um líf­eyr­isþega. Annað snýst um af­nám svo­kallaðrar krónu á móti krónu skerðingu líf­eyr­is­greiðslna vegna tekna sem líf­eyr­isþegar afla sér með at­vinnuþátt­töku annars vegar og að festa frí­tekju­mark tekju­trygg­ing­ar ör­yrkja vegna at­vinnu­tekna var­an­lega í lög­un­um í stað bráðabirgðaákvæðis sem þarf að end­ur­nýja á hverju ár. Bergþór Þórðarson pírati og frambjóðandi í prófkjöri pírata til borgarstjórnarkosninga samdi frumvörpin og segir réttilega að „Krónu á móti krónu skerðing­in er ein sú allra mesta van­v­irða við ör­yrkja og áður aldraða sem stjórn­völd­um hef­ur nokk­urn tím­ann dottið í hug að sýna gagn­vart líf­eyr­isþegum. Skerðing­in seg­ir mér að ég sé minna virði held­ur en Jón í næsta húsi sem er frísk­ur og fer í vinn­una á hverj­um degi og fær greidd laun frá fyrstu mín­útu í vinnu.“

Femínismi:

Þórhildur Sunna kom sterk inn í síðustu ríkistjórnarkosningum, hún vill láta endurskoða lög varðandi “uppreist æru” og koma í veg fyrir að dæmdir kynferðisafbrotamenn geti starfað sem lögmenn. Hún vakti athygli í #metoo byltingunni og á óhugnalegum metoo-sögum erlendra kvenna á Íslandi og kallaði eftir tafarlausum betrumbótum í samfélaginu. Í kjölfarið hafa píratar stofnað femínistafélag innan flokksins til að undirstrika jafnréttisstefnu flokksins.

Þér getur ef til vill þótt Píratar “sérkennilegir hausar” eins og virðuleg eldri kona orðaði það nýlega en það er vegna þess að þeir þurfa ekki að klæðast dýrum jakkafötum eða taka þátt í vinsældarkeppnum til að mark sé á þeim takandi, málefni þeirra standa fyrir sig sjálf og þú veist alltaf hvar þú hefur þá.

Ég er pírati því Píratar eru mestu töffararnir, svo einfalt er það.

Höfundur býður sig fram í prófkjöri Pírata í Reykjavík.




Skoðun

Sjá meira


×