Telur sig hafa borið kennsl á bein Ameliu Earhart Kjartan Kjartansson skrifar 8. mars 2018 12:39 Earhart öðlaðist heimsfrægð fyrir afrek sín á fyrstu áratugum 20. aldarinnar. Flugvél hennar hvarf yfir Kyrrahafi árið 1937. Vísir/AFP
Bein sem fundust á eyju í Kyrrahafinu á 5. áratugnum voru úr Ameliu Earhart sem hvarf þegar hún reyndi að verða fyrsta konan til að fljúga í kringum jörðina. Þetta fullyrðir vísindamaður sem rannsakaði beinin þrátt fyrir að réttarlæknir hafi á sínum tíma komist að þeirri niðurstöðu að beinin væru úr karlmanni. Breskir leiðangursmenn fundu beinin á eyjunni Nikumaroro árið 1940. Flugvél Earhart hvarf yfir Kyrrahafi þremur árum áður. Beinunum var hent eftir skoðun réttarmeinafræðings á sínum tíma. Richard L. Jantz, prófessor við Tennessee-háskóla, færir hins vegar rök fyrir því að greiningar á beinum hafi verið skammt á veg komnar á 5. áratug síðustu aldar. Það telur Jantz að hafi haft áhrif á kyngreiningu þeirra. Hann reyndi að bera saman upplýsingar um beinin sem fundust á eyjunni við hæð, þyngd, líkamsbyggingu, útlimalengd og hlutföll Earhart. Þróaði hann meðal annars tölvuforrit til að meta kyn og ætterni út frá mælingum á beinagrind, að sögn Washington Post.Beinabyggingin passar betur við Earhart en nær alla aðraNiðurstaða Jantz var að bein Earhart líktust þeim sem fundust á Nikumaroro meira en 99% einstaklinga í stóru úrtaki. Í tilfelli Nikumaroro-beinanna væri hún eina manneskjan sem vitað er um að hafa verið á ferð á þessum slóðum sem þau gætu hafa tilheyrt. Kenningar hafa áður komið fram um að beinin gætu verið úr Earhart. Jantz birti niðurstöður sínar í vísindaritinu Forensic Anthropology. Earhart var fyrsta konan sem flaug yfir Atlantshafið. Hvarf hennar hefur verið hulið leyndardómi í hátt í heila öld og hafa fjölmargar kenningar verið settar fram um örlög hennar í gegnum tíðina. Þar á meðal er kenning um að Earhart og Fred Noonan, siglingafræðingur hennar, hafi fallið í hendur Japana sem hafi talið þau bandaríska njósnara. Þau hafi verið pyntuð og myrt.
Tengdar fréttir Myndin tekin tveimur árum áður en Earhart hvarf Umdeild ljósmynd sem á að sýna flugkonuna Ameliu Earhart og Fred Noonan í haldi Japana á Jaluit-rifi í Marhsall eyjaklasanum árið 1937 birtist í ferðabók sem gefin var út í Japan árið 1936. 12. júlí 2017 13:50 Lést Amelia Earhart í haldi Japana? Gömul mynd sem fannst nýlega í Þjóðskjalasafni Bandaríkjanna er sögð gefa í skyn að frægasti kvenkyns flugmaður sögunnar, Amelia Earhart, hafi ekki dáið í flugslysi í Kyrrahafinu. 6. júlí 2017 10:45 Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira
Myndin tekin tveimur árum áður en Earhart hvarf Umdeild ljósmynd sem á að sýna flugkonuna Ameliu Earhart og Fred Noonan í haldi Japana á Jaluit-rifi í Marhsall eyjaklasanum árið 1937 birtist í ferðabók sem gefin var út í Japan árið 1936. 12. júlí 2017 13:50
Lést Amelia Earhart í haldi Japana? Gömul mynd sem fannst nýlega í Þjóðskjalasafni Bandaríkjanna er sögð gefa í skyn að frægasti kvenkyns flugmaður sögunnar, Amelia Earhart, hafi ekki dáið í flugslysi í Kyrrahafinu. 6. júlí 2017 10:45