Reyndi að ræna töskum á BSÍ Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. mars 2018 06:17 Ekki fylgir sögunni hvort einhver hafi fengið á kjammann á BSÍ í nótt. Vísir/Vilhelm
Lögreglan handtók erlendan karlmann á umferðarmiðstöðinni BSÍ í nótt sem reynt hafði að taka ferðatöskur ófrjálsri hendi. Maðurinn hafði engin skilríki með sér að sögn lögreglunnar og ekki bætti ástand hans úr skák, hann er sagður hafa verið nokkuð ölvaður þegar reynt var að ræða við hann. Ekkert vitrænt hafi hins vegar fengist upp úr honum og hefur hann því mátt sofa úr sér vímuna í fangageymslu lögreglunnar. Þá var tilkynnt um líkamsárás við veitingastað í Bæjarlind í Kópavogi á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Þar eru þrír menn sagðir hafa ráðist að einum og veitt honum áverka í andlitið. Málið er sagt vera til rannsóknar en ekki fylgir sögunni hvernig þolandanum heilsast eða hvort vitað sé um hvaða þrjá menn ræðir. Það var svo í Breiðholti sem lögreglan handtók konu sem var í annarlegu ástandi. Hún er talin hafa skemmt nokkrar bifreiðar sem stóðu við Jafnasel og var hún flutt í fangageymslu meðan mál hennar er til rannsóknar. Fjölmargir ökumenn voru jafnframt stöðvaðir í nótt grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum hvers kyns vímuefna.
Lögreglumál Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Inga skellihló að Sigurði Inga Innlent Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Bjarkey ekki undir feldi Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Einn á slysadeild eftir árekstur tveggja hlaupahjóla Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Pallborðið: „Taumlaus græðgi“ eða verðið á hveiti? Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor Sjá meira