Snjókomubakki fer yfir landið Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. mars 2018 06:50 Það gæti snjóað á höfuðborgarsvæðinu í nótt. VÍSIR/HANNA
Myndarlegur snjókomubakki er nú að myndast fyrir austan landið og mun hann ganga yfir Suður-og Austurland næsta sólarhringinn. Að sögn veðurfræðings er bakkinn væntanlegur inn á Austurland fyrir hádegi, hann mun svo færa sig yfir á Suðausturland undir kvöld og fer yfir á Suðurland fyrir miðnætti. Gera má ráð fyrir talsverðri snjókomu meðan bakkinn fer yfir. Þá mun mögulega eitthvað snjóa á höfuðborgarsvæðinu í nótt en það verður væntanlega í litlu magni að sögn veðurfræðings. Borgin verður nefnilega í jaðri snjókomubakkans. Annars er útlit fyrir norðan og norðaustan strekking og hvassara í vindstrengjum suðaustantil á landinu. Bjart veður sunnan heiða, en él norðanlands. Frostið verður á bilinu 0 til 7 stig og hlýjast verður syðst á landinu. Veðrið mun svo róast á landinu á morgun. Síðdegis verður vindur orðinn meinlaus að sögn veðurfræðings og búið að létta til aftur á Suður- og Vesturlandi. Fyrir norðan og austan verða þá dálítil él á stangli. Þetta meinlausa veður helst síðan væntanlega áfram út miðvikudaginn. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag:Austan og norðaustan 8-15 m/s, en 15-20 með suðurströndinni í fyrstu. Lítilsháttar él norðan- og austanlands, annars þurrt að kalla. Frost 0 til 7 stig, mildast syðst.Á miðvikudag:Norðaustan 8-13 og dálítil él, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 2 til 8 stig.Á fimmtudag:Norðan 8-13 og él norðaustan- og austanlands. Hægari austlæg átt og léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert. Áfram kalt í veðri.Á föstudag:Suðaustan 8-13 vestantil á landinu, skýjað og dálítil snjókoma allra vestast. Hægari breytileg átt annars staðar og víða bjart, en stöku él með austurströndinni. Frost um allt land, talsvert í innsveitum.Á laugardag og sunnudag:Líklega norðlæg átt með éljum fyrir norðan og austan, en bjart syðra. Kalt áfram.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira