Von á yfirlýsingu frá Sigur Rós Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. mars 2018 12:12 Meðlimir Sigur Rósar mótmæltu kyrrsetningunni á þeim grundvelli að stór hluti hennar varði einfalda túlkun á tekjuskattslögum. Þá hafi verið um að ræða handvömm endurskoðanda en ekki ásetning. vísir/getty
Von er á yfirlýsingu frá meðlimum hljómsveitarinnar Sigur Rósar síðar í dag samkvæmt upplýsingum Vísis vegna frétta af meintum skattalagabrotum þeirra.Fyrst var greint frá málinu í Fréttablaðinu í dag en í desember síðastliðnum féllst sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu á beiðni tollstjóra um að kyrrsetja eignir þeirra Orra Páls Dýrasonar, Jóns Þórs Birgissonar og Georgs Holm. Nemur kyrrsetning eignanna tæplega 800 milljónum króna en hæsta krafan er á hendur Jóni Þór, söngvari sveitarinnar, sem er betur þekktur sem Jónsi. Krafan sem snýr að honum hljóðar upp á 638 milljónir króna og nær til þrettán fasteigna, tveggja bifhjóla og tveggja bifreiða, sex bankareikninga og hlutafjár í þremur fyrirtækjum. Krafan á hendur Orra Páli, trommara sveitarinnar, nær til tveggja fasteigna og hljóðar upp á 82 milljónir króna. Krafan á hendur bassaleikaranum Georg nemur 78,5 milljónum króna og nær til tveggja fasteigna líkt og í tilfelli Orra. Vísir sendi fyrirspurn á Bryndísi Kristjánsdóttur, skattrannsóknarstjóra, vegna málsins en hún kvaðst ekki geta tjáð sig um einstök mál. Því hafa ekki fengist upplýsingar um fjárhæðirnar sem meint brot ná til en gera má ráð fyrir að þau nemi mörg hundruð milljónum króna því lögum samkvæmt er ekki heimilt að kyrrsetja eignir umfram þá fjárhæð sem meint skuld nemur. Meðlimir Sigur Rósar mótmæltu kyrrsetningunni á þeim grundvelli að stór hluti hennar varði einfalda túlkun á tekjuskattslögum. Þá hafi verið um að ræða handvömm endurskoðanda en ekki ásetning.
Tengdar fréttir Meðlimir Sigur Rósar sakaðir um skattsvik Sýslumaður kyrrsetti eignir meðlima Sigur Rósar upp á tæplega 800 milljónir króna vegna meintra skattalagabrota. Hljómsveitarmeðlimir mótmæltu allir. 16. mars 2018 04:51 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira
Meðlimir Sigur Rósar sakaðir um skattsvik Sýslumaður kyrrsetti eignir meðlima Sigur Rósar upp á tæplega 800 milljónir króna vegna meintra skattalagabrota. Hljómsveitarmeðlimir mótmæltu allir. 16. mars 2018 04:51