Körfuboltakvöld spáir í einvígi Tindastóls og Grindaíkur: „Auðvitað munu þeir sakna hans“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2018 13:15 Sigtryggur Arnar Björnsson. Vísir/Eyþór
Bikarmeistarar Tindastóls og Grindavík spila í kvöld fyrsta leikinn sinn í átta liða úrslitum úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta. Strákarnir í Körfuboltakvöldi fóru vel yfir komandi viðureign liðanna. Kjartan Atli Kjartansson sagði stóru spurninguna fyrir þetta einvígi vera hvort Sigtryggur Arnar Björnsson verði með Tindastól eða ekki. Hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla eftir áramót. „Hann skiptir þetta lið hellings máli en þeir eru hinsvegar alveg færir um að klára dæmið þótt þeir missi hann út í einhverja leiki. Að vera inn og út í einhverri seríu er samt ekki gott. Það er tegundin af meiðslunum hjá honum og kannski verður það raunin, að hann spili einn leik en hvíli næsta,“ sagði Kristinn Friðriksson en Sigtryggur Arnar glímir við nárameiðsli. „Ef eitthvað annað lið væri með þennan mann í leikstjórnendastöðunni þá mætti það ekki við því að missa hann. En af því að þeir eru með anna gæja þarna sem er alveg jafngóður og ekki síðri þá komast þeir í gegnum þetta,“ sagði Teitur Örlygsson. „Auðvitað munu þeir sakna hans ef hann missir af þessu öllu. Það verður agalegt. Það er mikið álag í úrslitakeppninni með þrjá leiki á viku sem er ekki ofboðslega gott fyrir leikmenn með nárameiðsli,“ sagði Teitur. „Þetta verður mjög erfið sería fyrir Stólana og Grindvíkingar munu alveg drena orkuna úr Stólunum í þessari seríu,“ sagði Kristinn. Hér fyrir neðan má sjá Kjartan Atla Kjartansson, Teit Örlygsson og Kristinn Friðriksson fara yfir einvígið og leikmannaglímurnar inn á vellinum. Þeir Teitur og Krisinn spá síðan hvernig einvígið fer í lokin á innslaginu.
Dominos-deild karla Mest lesið Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira