Ók á ljósastaur og hótaði lögreglumönnum Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. mars 2018 06:20 Það voru ófáir stútar undir stýri í nótt. Vísir/GETTY
Vímaðir ökumenn voru fyrirferðamiklir í útköllum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Einn þeirra, sem stöðvaður var á Eyrartröð, ók til að mynda á ljósastaur og lét sig síðan hverfa. Þegar lögreglumenn höfðu hendur í hári hans þótti ljóst að ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá er hann einnig sagður hafa ekið án réttinda og á hann einnig að hafa staðið í hótunum við lögreglumenn. Ökumaðurinn var því fluttur í fangageymslu þar sem hann hefur fengið að sofa úr sér vímuna. Á Dalbraut var ökumaður jafnframt stöðvaður vegna undarlegs aksturslags. Hann er sagður hafa ekið undir áhrifum sterkra deyfi- eða svefnlyfja. Ekki fylgir sögunni hvernig mál hans endaði en ólíklegt verður að teljast að hann hafi fengið að halda ökuferð sinni áfram. Þá bárust lögreglu ábendingar á fimmta tímanum í morgun um ökumann sem sat í kyrrstæðri bifreið með hljómtækin á hæsta styrk. Aðspurður er ökumaðurinn sagður hafa framvísað ætluðum fíkniefnum og var málið afgreitt á vettvangi.
Lögreglumál Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Inga skellihló að Sigurði Inga Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Bjarkey ekki undir feldi Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Einn á slysadeild eftir árekstur tveggja hlaupahjóla Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Pallborðið: „Taumlaus græðgi“ eða verðið á hveiti? Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor Sjá meira