Varað við stormi sunnan- og suðaustanlands Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. mars 2018 08:49 Vindaspá Veðurstofu Íslands eins og hún lítur út fyrir hádegið í dag. veðurstofa íslands
Gular viðvaranir eru í gildi á Suður- og Suðausturlandi og er varað við staðbundnum stormi syðst sem og staðbundnum stormi við Öræfajökul. Er því beint til vegfarenda að sýna aðgát, sérstaklega þeir sem eru á bílum sem taka á sig mikinn vind, til dæmis rútur. Í viðvörun vegna storms sunnanlands segir á vef Veðurstofunnar að búast megi austan og norðaustan við 18 til 23 metrum á sekúndu undir Mýrdals-og Eyjafjallajökli og að vindhviður þar geti verið um eða yfir 30 metra á sekúndu. Þá er einnig búið við lítilsháttar éljum og gæti skafrenningur því orðið til trafala. Svipað er svo upp á teningnum vestan- og sunnan undir Öræfajökli þar sem spáð er svipað miklum vindstyrk og svipað sterkum vindhviðum.Veðurhorfur í dag og næstu daga eru annars þessar:Austan- og norðaustanátt, víða 8-13 m/s, en 15-23 syðst á landinu og í Öræfum fram eftir degi og aftur síðdegis á morgun. Skýjað með köflum um landið vestan- og norðanvert, en skýjað og dálítil él eða slydduél suðaustan- og austanlands.Bætir í úrkomu síðdegis snjókoma eða slydda í kvöld en síðan rigning á láglendi. Allvíða frostlaust yfir daginn á Suður- og Vesturlandi, annars frost að 10 stigum, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Hlýnar í flestum landshlutum á morgun, og hiti 1 til 6 stig en áfram vægt frost á Norðurlandi og dálítil él um tíma.Á miðvikudag:Austan- og norðaustanátt, víða 8-15 m/s. Slydda eða rigning með köflum, einkum sunnan og austanlands og hiti 1 til 6 stig. Dálítil snjókoma um tíma norðantil á landinu og vægt frost þar.Á fimmtudag:Austlæg átt 5-10, en 10-15 með suðurströndinni. Lengst af rigning en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 2 til 8 stig, mildast syðst.Á föstudag og laugardag:Fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað víðast hvar og dálítil væta en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira