Skallagrímur sigraði Val í Fjósinu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. mars 2018 21:04 Guðbjörg Sverrisdóttir og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir börðust í leiknum í dag vísir/eyþór
Skallagrímur vann mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í úrslitakeppni Domino's deildar kvenna þegar liðið lagði Val að velli á heimavelli sínum í Borgarnesi í kvöld. Fyrir leikinn var Skallagrímur fjórum stigum á eftir Stjörnunni sem situr í fjórða sætinu, síðasta sætinu í úrslitakeppninni. Valur var hins vegar í öðru sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Hauka. Mjög jafnt var með liðunum í fyrri hálfleik en heimakonur fóru með þriggja stiga forystu inn til búningsherbergja, 43-40. Gestirnir skoruðu hins vegar aðeins 10 stig í þriðja leikhluta og var staðan 57-50 að honum loknum. Valskonur komu sterkar út í loka fjórðunginn og minnkuðu muninn niður í eitt stig. Þær jöfnuðu svo leikinn þegar um fimm mínútur voru eftir og komust einu stigi yfir. Þá skoraði Skallagrímur hins vegar 10 stig í röð og staðan orðin 73-62. Eftir það var sigurinn gott sem kominn í hús hjá heimakonum sem sigldu heim átta stiga sigri, 83-75. Eftir 24 umferðir af 28 er staðan þá þannig að Haukar eru á toppnum með 38 stig, Valur í öðru sæti með 34, Keflavík í því þriðja með 32, Stjarnan með 26 stig í fjórða sæti og Skallagrímur í fimmta sæti með 24 stig. Blikar eiga enn möguleika á að taka fjórða sætið en þær eru í 6. sæti með 20 stig og Snæfell er í 7. sæti með 18 stig. Njarðvík er á botninum án stiga.Skallagrímur-Valur 83-75 (19-18, 24-22, 14-10, 26-25) Skallagrímur: Carmen Tyson-Thomas 32/20 fráköst/6 stoðsendingar, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 17/7 fráköst, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 16/4 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 11/9 fráköst/8 stoðsendingar, Bríet Lilja Sigurðardóttir 4, Jeanne Lois Figueroa Sicat 3.Valur: Hallveig Jónsdóttir 23, Aalyah Whiteside 22/14 fráköst/6 stoðsendingar, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 11, Bergþóra Holton Tómasdóttir 8/5 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 6/9 fráköst, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 3, Ragnheiður Benónísdóttir 2/4 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira