Óvopnaður maður með buxurnar á hælunum skotinn til bana af lögreglu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. mars 2018 18:31 Skjáskot út myndbandinu. Vísir
Lögreglumaður í Texas í Bandaríkjunum skaut óvopnaðan mann til bana síðastliðinn fimmtudag. Maðurinn var með buxurnar á hælunum en hlýddi ekki fyrirmælum lögreglumannsins. New York Times greinir frá. Myndband sem lögreglan í Houston hefur birt, og sjá má hér að neðan, sýnir hvernig maðurinn, hinn 34 ára gamli Danny Ray Thomas, virðist eiga í átökum við annan mann út á götu. Myndbandið er tekið upp af myndavél í bíl lögreglumannsinns sem skaut Thomas til bana. Í myndbandinu má sjá hvernig Thomas gengur að lögreglumanninum. Þá má einnig heyra hvernig lögreglumaðurinn kallar á Thomas að leggjast á jörðina. Svo virðist sem að Thomas hafi ekki hlýtt tilmælum lögreglumannsins sem heitir Cameron Brewer. Heyrist þá hvernig Brewer skýtur Thomas. Systir hans mætti á borgarráðsfund í Houston í vikunni þar sem hún grátbað stjórnmálamenn um að koma í veg fyrir ofbeldi af hálfu lögreglumanna. Sagði hún við fjölmiðla fyrir utan ráðhúsið í Houston að frá hennar sjónarhóli líti út fyrir að bróðir hennar hafi verið myrtur. „Hann var augljóslega að labba að lögreglumanninum. Hann var ekki hlaupandi að honum eða að reyna að meiða hann,“ sagði hún við fjölmiðla. Brewer var einnig vopnaður rafbyssu en notaði hana ekki. Hann hefur verið settur í leyfi á meðan rannsókn málsins fer fram.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira