Franski lögreglumaðurinn látinn af sárum sínum Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2018 07:33 Franska lögreglan gerði húsleit í íbúðarhúsnæði í Carcassonne eftir hryðjuverkaárásina í gær. Vísir/AFP
Lögreglumaður sem fórnaði lífi sínu til að bjarga gísl úr haldi hryðjuverkamanns í stórverslun í Frakklandi í gær lést af sárum sínum. Forseti Frakklands segir lögreglumanninn hafa fallið sem hetja og að hann hafi sýnt „framúrskarandi hugrekki“. Arnaud Beltrame, undirofursti, bauð hryðjuverkamanninum sjálfan sig í skiptum fyrir konu sem hann hélt í gíslingu í versluninni í Carcassonne í gær. Hryðjuverkamaðurinn hafði þá drepið eiganda bíls sem hann stal fyrr um daginn, sært lögreglumenn og drepið starfsmann og viðskiptavin verslunarinnar. Hryðjuverkamaðurinn skaut Beltrame og réðst sérsveit lögreglunnar þá inn og skaut hann til bana. Særðist Beltrame lífshættulega og lést á sjúkrahúsi í nótt. Sextán aðrir særðust í morðæði hryðjuverkamannsins sem hafði krafist þess að hryðjuverkamanninum Salah Abdeslam yrði sleppt. Abdeslam stóð að hryðjuverkárásinni í París í nóvember árið 2013 sem varð 130 manns að bana. Emmanuel Macron, forseti Frakklands lýsti voðaverkunum í gær sem „íslömsku hryðjuverki“ og lofaði hugrekki Beltrame, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. „Hann dó fyrir land sitt. Frakkland mun aldrei gleyma hetjudáð hans, hugrekki og fórn,“ sagði Gérard Collomb, innanríkisráðherrann á Twitter þegar hann tilkynnti um dauða lögreglumannsins.
Tengdar fréttir Gíslatökumaðurinn felldur af lögreglu Þrír eru látnir og tveir særðir eftir tvær árásir í Frakklandi. 23. mars 2018 13:46 Átta manns haldið í gíslingu í verslun í Frakklandi Sá sem tók fólkið í gíslingu sagðist vera á vegum ISIS. 23. mars 2018 11:30 Lögreglumaðurinn sem fórnaði sér berst fyrir lífi sínu Franskur lögreglumaður sem bauð sjálfan sig í skiptum fyrir gísla í gíslatöku í matvöruverslun í Suður-Frakklandi í dag berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi. 23. mars 2018 22:45 Mest lesið Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Erlent „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Vilja fá valdið aftur Innlent Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Erlent „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Innlent Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Innlent Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra Innlent Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Innlent Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Innlent Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Innlent Fleiri fréttir Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Ætla að fá þjóðernisflokki völdin í innflytjendamálum Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Rýma svæði í Austur-Finnlandi vegna úkraínsks sprengjudróna Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Vill ljúka stjórnarmyndun í Færeyjum í næstu viku Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Blaðamanni rænt í Írak Vilja fresta fyrirtöku á grunni kúlurannsóknar Telur að múslimar geti ekki verið Svíar „Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Banna íbúðakaup til öskugeymslu Vill að tæp milljón Sýrlendinga yfirgefi Þýskaland Skoðar að enda stríðið án þess að opna Hormússund Hyggjast tollleggja skipaumferð um Hormuz-sund Árásarmenn teknir af lífi innan 90 daga Ofsahræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flugtak Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Telja réttarmorð framið á hjúkrunarfræðingi sem var dæmdur fyrir barnamorð Uppnám í bláu blokkinni eftir dönsku kosningarnar Segir viðræður ganga stórvel en hótar stríðsglæpum Úkraínskir drónar brotlentu í Finnlandi Tölur um vaxandi trúrækni ungs fólks byggðar á sandi „Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Rændu verkum frönsku meistaranna sem metin eru á milljarða Enn fer ekki saman hljóð og mynd Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Sjá meira
Gíslatökumaðurinn felldur af lögreglu Þrír eru látnir og tveir særðir eftir tvær árásir í Frakklandi. 23. mars 2018 13:46
Átta manns haldið í gíslingu í verslun í Frakklandi Sá sem tók fólkið í gíslingu sagðist vera á vegum ISIS. 23. mars 2018 11:30
Lögreglumaðurinn sem fórnaði sér berst fyrir lífi sínu Franskur lögreglumaður sem bauð sjálfan sig í skiptum fyrir gísla í gíslatöku í matvöruverslun í Suður-Frakklandi í dag berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi. 23. mars 2018 22:45