Hlynur var „kýldur niður:“ Það var tekið upp eitthvað „show“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. mars 2018 21:48 Hlynur Bæringsson. Vísir/Andri Marinó
Mikill hiti var í mönnum í Seljaskóla í kvöld þar sem ÍR og Stjarnan mættust í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Domino’s deildar karla. ÍR fór með þriggja stiga sigur, 67-64, eftir háspennu leik. Mikil harka var í leiknum og í fyrsta leikhluta átti sér stað atvik þar sem Ryan Taylor, leikmaður ÍR, virðist slá Hlyn Bæringsson hjá Stjörnunni í höfuðið. „Ég verð frekar að spyrja þig, þú ert líklega búin að sjá það aftur,“ sagði Hlynur aðspurður hvað honum fyndist um atvikið eftir leik. „Þeir segja að þetta hafi litið mjög illa út, ég var bara kýldur, sleginn niður.“ „Það þarf svolítið að taka á því og mér fannst öll atburðarásin eftir það líka bara mjög slæm. Viðmót og allt, mér fannst það mjög slæmt.“ Stjörnubekkurinn fékk dæmda á sig tæknivillu eftir mótmæli, en Taylor fékk óíþróttamannslega villu fyrir brotið. Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, vildi sjá Taylor vikið úr húsi fyrir brotið. „Við fengum tæknivillu eftir þetta, á bekkinn, en hún var samt eiginlega á mig. Það var bara tekið upp eitthvað „show.““ „Ef þetta er viljandi, sem ég veit ekkert um og ég ætla ekkert að segja til um það núna, þá snýst það um að vera góður dómari og bregðast almennilega við því. Það er mjög erfitt og ég skil það alveg.“ „Ég var reiður og fékk tæknivilluna, en ég blótaði þessu ekkert eða var neitt dónalegur við þá,“ sagði Hlynur Bæringsson. Stjarnan er nú 2-1 undir í einvígi liðanna og þarf að sækja sigur á heimavelli sínum í Garðabæ á sunnudaginn.
Dominos-deild karla Mest lesið Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira