Ívar: „Við erum betra liðið og þeir vita það“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 9. apríl 2018 21:36 Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka. Vísir/Bára
Haukar töpuðu fyrir KR í leik 2 í undanúrslitum í Domino’s deild karla eftir framlengdan leik í Vesturbænum í dag. „Auðvitað er ég svekktur með að hafa tapað þessu því við vorum með unnin leik en þetta er körfubolti. Við erum búnir að vinna svona leiki líka og þetta er gangur leiksins,“ sagði Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. Það var í raun ótrúlegt að KR næði að vinna leikinn þar sem Haukar voru með forystuna lengst af og leiddu með 11 stigum þegar fimm mínútur voru eftir. „Þeir komu ekki til baka. Við réttum þeim þetta. Við sýndum öllum í húsinu að við erum betra liðið og þeir vita það innst inni.“ „Nú þurfum við bara að mæta grimmir til leiks eins og við erum búnir að vera og klára 40 mínútur, ekki bara 38.“ Þrátt fyrir að Ívar hafi lýst því yfir að Haukar væru með betra lið vildi hann þó ekki segja að hans menn tækju næstu tvo leiki og kláruðu einvígið. „Mér er alveg sama hvort við tökum tvo næstu eða hvað. Mér er nákvæmlega sama hvort þetta fari 3-1 eða 3-2, bara að við vinnum þetta.“ „Við vitum að þetta verður hörku barátta, við þurfum bara að halda áfram í því sem við erum búnir að vera að gera, það er að virka vel.“ „Þetta var hörkuleikur og við erum að spila á móti frábæru liði, fjórföldum Íslandsmeisturum. Þú kemur ekkert á þeirra heimavöll og valtar yfir þá. Mér fannst við vera mjög góðir í kvöld, en því miður þá fór þetta svona,“ sagði Ívar Ásgrímsson.
Dominos-deild karla Mest lesið Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð Enski boltinn Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Formúla 1 Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Fótbolti Robertson sá um að hefna Fótbolti Fleiri fréttir Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic „Þegar liðsfélagar þínir hafa trú á þér þá kemur sjálfstraustið“ Stjarnan kláraði Ármann snemma en Stólarnir stóðu í Keflavík Uppgjörið: Grindavík - Valur 75-83 | Valur vann framlengdan naglbít Leik lokið: Njarðvík - Haukar 98-115 | Haukar mættu í hefndarhug til Njarðvíkur Unnu þrítugasta sigurinn í röð í nótt Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Sjá meira