Hátt í tuttugu stiga frost við Mývatn Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 6. apríl 2018 07:38 Brrrrrr. Mynd/Veðurstofan.
Tveggja stafa frosttölur mældust í nótt á mælistöðvum í flestum landshlutum. Heiðríkja er á nánast öllu landinu og vindur hægur. „Má þar nefna uppsveitir Suðurlands og Faxaflóa, innsveitir á Norðvesturlandi og kaldast í byggð varð á Norðausturlandi þar sem mældist 18.4 stiga frost í nótt við Mývatn. Enn kaldara varð á hálendinu og þar ber hæst 21.8 stiga frost á Kárahnjúkum, 22.8 stig á Brúarjökli og 25.2 stig á Dyngjujökli,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Áfram er útlit fyrir hægan vind og heiðríkju á stórum hluta landsins í dag. „Þó ber að nefna að svolítil lægðabóla nálgast nú Vestfirði og eftir hádegi má búast við suðvestan 8-13 m/s af hennar völdum á norðvestanverðu landinu. Lægðin sendir einnig dálítinn éljagarð inn á vestanvert landið og má því búast við stöku éljum á þeim slóðum þegar kemur fram á daginn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Heilt yfir er gert ráð fyrir rólegu veðri á landinu um helgina. Lítið sem ekkert verður um úrkomu en áfram verður kalt að nætulagi.Veðurhorfur á landinu Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Gengur í suðvestan 8-13 m/s á norðvestanverðu landinu eftir hádegi og þá stöku él vestanlands. Vestlæg átt 3-10 á morgun. Bjart veður sunnan- og austanlands. Él við norðurströndina og einnig lítilsháttar él á vestanverðu landinu framan af degi. Hiti að 6 stigum sunnanlands yfir daginn, en kringum frostmark fyrir norðan og austan. Kaldara að næturlagi. Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Vestlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 nyrst á landinu. Léttskýjað sunnan- og austanlands. Él við norðurströndina og einnig lítilsháttar él á vestanverðu landinu framan af degi. Hiti að 6 stigum sunnanlands yfir daginn, en kringum frostmark annars staðar á landinu.Á sunnudag:Hæg suðaustlæg átt og léttskýjað, en 5-10 með suðurströndinni og skýjað. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en um og undir frostmarki norðan- og austanlands.Á mánudag:Suðaustan og austan 3-8 og bjartviðri, en 8-13 sunnanlands og dálítil rigning eða slydda af og til. Hiti breytist lítið.Á þriðjudag:Sunnan 5-13 og rigning með köflum, en bjart á Norður- og Austurlandi. Hvessir seinnipartinn, sunnan 13-20 um kvöldið og bætir í rigningu. Hlýnandi veður, hiti 3 til 9 stig undir kvöld.Á miðvikudag:Sunnan 10-18 í fyrstu og rigning, en þurrt um landið norðaustanvert. Snýst í heldur hægari suðvestanátt vestantil um hádegi með skúrum. Hiti 3 til 8 stig, en kólnar um kvöldið.Á fimmtudag:Suðvestan 5-13 á Suður- og Vesturlandi og dálitlir skúrir eða slydduél. Hægari sunnanátt austanlands og rigning, en styttir upp seinnipartinn. Þurrt á Norðurlandi. Hiti 1 til 7 stig.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira