Vilja að spænsk yfirvöld endurskoði lög um kynferðisbrot Sylvía Hall skrifar 29. apríl 2018 16:49 Mótmælendur hafa safnast saman á götum Spánar til þess að sýna samstöðu með fórnarlambinu og krefjast breytinga. Vísir/Getty
Mótmæli í borginni Pamplona í norðurhluta Spánar hafa færst í aukana þar sem mótmælt er úrskurði dómstóla þar í landi yfir fimm mönnum sem voru sakfelldir fyrir hópnauðgun. Mennirnir voru dæmdir í níu ára fangelsi með tækifæri á reynslulausn eftir fimm ár. Saksóknari hafði farið fram á yfir 20 ára fangelsi yfir mönnunum. Mótmælin hafa einnig færst til Madrid, Barcelona og Valencia eftir að dómur féll í málinu, en þetta er þriðji dagur mótmælanna. Farið er fram á lög varðandi kynferðisbrot í landinu verði endurskoðuð, en í dag er stigsmunur milli mála eftir því hvort annarskonar ofbeldi hafi verið beitt við verknaðinn. Yfirvöld í landinu hafa sagst tilbúin til að endurskoða lagasetningu í kringum kynferðisbrotamál í kjölfarið. Mennirnir fimm, sem kalla sig úlfahópinn [the Wolf Pack], réðust á 18 ára stúlku eftir hátíðarhöld í kringum nautaat í borginni. Þeir buðust til þess að fylgja stúlkunni að bíl hennar, fóru síðan með hana í byggingu þar sem þeir réðust á hana. Árásarmennirnir tóku árásina upp á síma. Fjöldi fólks hefur einnig sett inn færslur á Twitter undir myllumerkinu #cuéntalo, sem má þýða sem „segðu það“. Þar hefur fjöldi fólks deilt reynslu sinni af kynferðislegu ofbeldi til að sýna fórnarlambinu stuðning.
Tengdar fréttir Mótmæltu vægum dómi fyrir hópnauðgun á Spáni Mótmælendur segja dóminn hneyksli en þeir voru dæmdir í níu ára fangelsi með tækifæri til reynslulaunsar eftir fimm ár. 26. apríl 2018 18:53 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Mótmæltu vægum dómi fyrir hópnauðgun á Spáni Mótmælendur segja dóminn hneyksli en þeir voru dæmdir í níu ára fangelsi með tækifæri til reynslulaunsar eftir fimm ár. 26. apríl 2018 18:53