Handbolti

Níu íslensk mörk og Kristianstad sigri frá úrslitarimmunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur átti virkilega góðan leik í kvöld. Hér er hann í leik með Kristianstad.
Ólafur átti virkilega góðan leik í kvöld. Hér er hann í leik með Kristianstad. vísir/heimasíða kristianstad
Íslendingalið IFK Kristianstad þarf einn sigur í viðbót gegn Lugi til að tryggja sér sæti í úrslitarimmunni um sænska meistaratitilinn í handbolta.

Kristianstad skellti Lugi í þriðja leik liðanna á heimavelli í kvöld, 31-23, eftir að hafa leitt 22-12 í hálfleik.

Lugi vann síðasta leik á dramatískan hátt og það var ljóst frá upphafi í hvað stefndi í kvöld en Kristianstad þarf einn sigur í viðbót til þess að komast í úrslit. Næst mætast liðin á sunnudag í Lugi.

Ólafur Guðmundsson skoraði fimm mörk og þeir Arnar Freyr Arnarsson og Gunnar Steinn Jónsson sitt hvor tvö mörkin. Níu íslensk mörk af 31 marki Kristianstad. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×