Sajid Javid nýr innanríkisráðherra Bretlands Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. apríl 2018 12:16 Sajid Javid er fyrsti innanríkisráðherrann sem kemur úr þjóðernislegum minnihlutahópi en hann er af pakistönsku bergi brotinn. vísir/getty
Sajid Javid er nýr innanríkisráðherra Bretlands. Hann tekur við embættinu í kjölfar þess að Amber Rudd sagði af sér embætti í gær vegna Windrush-málsins svokallaða. Hann er fyrsti innanríkisráðherrann sem kemur úr þjóðernislegum minnihlutahópi en hann er af pakistönsku bergi brotinn. Windrush-málið snýr að kynslóð innflytjenda sem komu frá Jamaíku og fleiri eyjum í Karíbahafinu á 5. áratugnum og framkomu yfirvalda í þeirra garð. Fólkið kom löglega til Bretlands og settist löglega að í landinu en réttur þeirra til að dvelja í Bretlandi hefur verið dreginn í efa. Þannig hefur fólki verið neitað um aðgang að læknisþjónustu, það hefur misst vinnuna og verið í haldi vegna þessa. Javid segir að hann ætli að endurskoða innflytjendastefnuna og sjá til þess að hún verði sanngjörn og að komið verði fram við fólk af virðingu. Rudd sagði af sér þar sem hún hafði ekki greint breska þinginu rétt frá þeim markmiðum sem ríkisstjórnin hafði sett sér varðandi það hversu mörgum innflytjendum ætti að vísa úr landi. Þannig sagði Rudd þingmönnum í liðinni viku að innanríkisráðuneytið hefði ekki sérstök markmið þegar markmið varðandi það hversu mörgum ólöglegum innflytjendum ætti að vísa úr landi. Í gær birti breska blaðið Guardian hins vegar minnisblað þar sem kom fram að Rudd hefði sett fram markmið um að vísa 10 prósentum fleiri innflytjenda úr landi á næstu árum. Sagði Theresa May, forsætisráðherra, fyrr í dag að þetta væri ástæða afsagnar Rudd; hún hefði gefið þinginu rangar upplýsingar.
Tengdar fréttir Innanríkisráðherra Breta segir af sér Mikill þrýstingur hefur verið á Amber Rudd vegna Windrush-málsins svokallaða. 29. apríl 2018 22:16 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Innanríkisráðherra Breta segir af sér Mikill þrýstingur hefur verið á Amber Rudd vegna Windrush-málsins svokallaða. 29. apríl 2018 22:16