Kalda lægðin frá Kanada er nú á undanhaldi Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 6. maí 2018 08:44 Ljósmyndari Vísis tók þessa mynd í Kópavogi í vikunni. Vísir/Vilhelm
Lægðin sem hefur dælt til okkar köldu lofti frá Kanada er nú á undanhaldi og er útlit fyrir slydduél S- og V-lands í dag með allhvassri suðvestanátt, en áfram þurrt NA-til. Á morgun er það ný lægð úr suðri sem mun stjórna veðrinu, en henni fylgir mun hægari suðlæg og suðaustlæg átt með rigningu eða súld og hlýnar í veðri samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Ekki er útlit fyrir að úrkoman nái inn á NA-land. Í komandi viku eru það austlægar eða breytilegar áttir sem ráða ríkjum með vætu í flestum landshlutum.Veðurhorfur á landinu Suðvestan 10-18 m/s og él eða slydduél um landið S- og V-ert, en yfirleitt þurrt og bjart NA-til. Hiti 1 til 9 stig að deginum, hlýjast á Austurlandi. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. Snýst í sunnan og suðaustan 5-13 m/s upp úr hádegi á morgun og víða rigning eða súld, en úrkomulítið á NA-landi. Hlýnar heldur.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag: Snýst í sunnan og suðaustan 5-13 m/s með rigningu og súld, en úrkomulítið á N- og A-landi. Hiti 4 til 10 stig, hlýjast NA-til.Á þriðjudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, skýjað að mestu og dálítil væta, einkum S- og A-til. Hiti 3 til 10 stig að deginum, mildast SV-lands.Á miðvikudag: Gengur í stífa norðaustanátt með rigningu, en úrkomulítið NV-til. Kólnar heldur.Á fimmtudag (uppstigningardagur): Breytileg átt og rigning með köflum í flestum landshlutum. Hiti 3 til 10 stig að deginum, svalast á Vestfjörðum.Á föstudag: Breytileg átt og víða væta, en úrkomulítið NA-til. Hiti breytist lítið.Á laugardag: Útlit fyrir hæga breytilega átt og þurrt veður. Kólnar fyrir norðan, en allt að 11 stigum syðst.
Veður Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira