Allir flutningar lögheimilis í Árneshrepp taldir ólöglegir Kristján Már Unnarsson skrifar 18. maí 2018 20:00 Frá Norðurfirði í Árneshreppi. Kaupfélagshúsið fyrir miðri mynd. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Lögheimilisflutningar tólf einstaklinga inn í Árneshrepp, sem Þjóðskrá hefur lokið rannsókn á, reyndust allir ólöglegir og eru úr gildi fallnir. Mál sex einstaklinga til viðbótar eru enn til rannsóknar og búist við niðurstöðu í næstu viku. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. Stór orð hafa síðustu daga fallið í umræðu um óvænta fjörutíu prósenta íbúafjölgun í hreppnum þar sem andstæðingar áforma um virkjun Hvalár eru sagðir með skipulögðum hætti hafa reynt að taka yfir sveitarfélagið. Það var þann 4. maí, fyrir tveimur vikum, sem starfsmenn Þjóðskrár urðu varir við óeðlilega miklar lögheimilisskráningar inn í Árneshrepp og því var ákveðið að hefja rannsókn. Athygli vakti að margir höfðu skráð sig á eyðibýlin Dranga og Seljanes, og það án vitundar landeiganda. Mál samtals átján einstaklinga voru tekin til skoðunar og nú liggur fyrir niðurstaða í tólf málum.Ástríður Jóhannesdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Þjóðskrár Íslands.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.„Ellefu af þeim málum lýkur með því að við fellum úr gildi lögheimilsskráningu viðkomandi einstaklinga en í einu máli fer fram leiðrétting á skráningu lögheimilis að ósk viðkomandi einstaklings,” segir Ástríður Jóhannesdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu hjá Þjóðskrá Íslands. Engin þessara tólf lögheimilisskráninga náði þannig í gegn sem lögleg skráning í Árneshreppi. „Okkar niðurstaða er sú að tólf einstaklingar, eða þessir ellefu einstaklingar, fyrirgefðu, uppfylli ekki skilyrði laga um að hafa fasta búsetu á þeim stað sem þeir tilkynntu um í sinni tilkynningu.“ -En voru þetta málamyndaskráningar að mati Þjóðskrár? „Við verðum að líta svo að það hafi ekki verið lögð fram gögn sem sýna með fullnægjandi hætti að viðkomandi einstaklingar hafi haft fasta búsetu á þessum stað,” svarar Ástríður.Meirihluti nýskráðra íbúa Árneshrepps sagðist eiga heima á eyðibýlunum Dröngum og Seljanesi.Grafík/Guðmundur Björnsson.Lögmenn Árneshrepps bentu á það í minnisblaði að mál af þessu tagi gætu talist kosningaspjöll en við þeim liggja sektir og allt að tveggja ára fangelsi. En verða eftirmál? Fer þetta mál til lögreglu? „Ég get ekki svarað því. Það er ekki okkar hlutverk að taka ákvörðun um það.” Enn er ólokið rannsókn mála sex einstaklinga. „Við munum ljúka þeim sem fyrst eftir helgina þegar frestur til að koma að gögnum og nánari rannsókn hefur farið fram hjá stofnuninni,” segir Ástríður. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Tengdar fréttir Lögheimilisskráningar á Ströndum taldar tilraun til kosningasvindls Óvænt stórfjölgun á íbúaskrá Árneshrepps á Ströndum tengist átökum um Hvalárvirkjun. Málið gæti endað sem lögreglumál, sem tilraun til kosningasvindls. 11. maí 2018 21:15 Aðför sem lýsir virðingarleysi og fádæma dómgreindarleysi Formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga segir atburðina í Árneshreppi grófa aðför að sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélags. Þetta sé sambærilegt því ef 40 þúsund íbúar á landsbyggðinni myndu skrá sig til málamynda í Reykjavík til að hafa áhrif á flugvöllinn í Vatnsmýri. 17. maí 2018 12:45 Hægt að gera breytingar á kjörskrá fram á kjördag Þjóðskrá Íslands stefnir á að ljúka athugun sinni á lögheimilisskráningum fólks í Árneshrepp sem áttu sér stað um síðustu mánaðamót öðru hvoru megin við helgina, það er í lok þessarar viku eða byrjun þeirrar næstu. 16. maí 2018 15:00 Skráðu lögheimili á afskekktu eyðibýli í óþökk landeiganda Talsmaður Saving Iceland, baráttusamtaka gegn virkjunum, er meðal þeirra sem flutt hafa lögheimili sitt á eyðibýli í Árneshreppi í óþökk landeiganda. 14. maí 2018 21:45 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira
Lögheimilisskráningar á Ströndum taldar tilraun til kosningasvindls Óvænt stórfjölgun á íbúaskrá Árneshrepps á Ströndum tengist átökum um Hvalárvirkjun. Málið gæti endað sem lögreglumál, sem tilraun til kosningasvindls. 11. maí 2018 21:15
Aðför sem lýsir virðingarleysi og fádæma dómgreindarleysi Formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga segir atburðina í Árneshreppi grófa aðför að sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélags. Þetta sé sambærilegt því ef 40 þúsund íbúar á landsbyggðinni myndu skrá sig til málamynda í Reykjavík til að hafa áhrif á flugvöllinn í Vatnsmýri. 17. maí 2018 12:45
Hægt að gera breytingar á kjörskrá fram á kjördag Þjóðskrá Íslands stefnir á að ljúka athugun sinni á lögheimilisskráningum fólks í Árneshrepp sem áttu sér stað um síðustu mánaðamót öðru hvoru megin við helgina, það er í lok þessarar viku eða byrjun þeirrar næstu. 16. maí 2018 15:00
Skráðu lögheimili á afskekktu eyðibýli í óþökk landeiganda Talsmaður Saving Iceland, baráttusamtaka gegn virkjunum, er meðal þeirra sem flutt hafa lögheimili sitt á eyðibýli í Árneshreppi í óþökk landeiganda. 14. maí 2018 21:45