Minnisblað CIA afhjúpar grimmdarverk fyrrverandi einræðisherra Brasilíu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. maí 2018 23:32 Ernesto Geisel sést hér við hlið Elísabetar II Englandsdrottningar við hátíðarkvöldverð í Buckingham-höll árið þegar hann var í opinberri heimsókn í Bretlandi ásamt konu sinni árið 1976. vísir/getty
Ernesto Geisel, fyrrverandi einræðisherra Brasilíu, samþykkti sjálfur aftökur einstaklinga sem taldir voru andstæðingar hans að því er fram kemur í minnisblaði CIA, bandarísku leyniþjónustunnar, sem gert var opinberað var í Brasilíu í gær. Aftökurnar fóru fram án dóms og laga. Minnisblaðið hefur skapað mikla umræðu í Brasilíu um einhvern myrkasta kafla í sögu landsins en Geisel var talinn einn af „ljúfari“ einræðisherrum landsins á árunum 1964 til 1985 þegar einræðisherrar úr röðum hersins voru við völd. Geisel var einræðisherra á árunum 1974 til 1979. Hann lést árið 1996. Það var fræðimaðurinn Matias Spektor sem uppgötvaði minnisblaðið við rannsóknir sínar en það var gert opinbert af bandarísksa utanríkisráðuneytinu árið 2015. Spektor lýsir minnisblaðinu sem ógeðfelldasta skjali sem hann hefur lesið á 20 ára ferli sínum en hann stundar rannsóknir á sviði á utanríksistefnu Brasilíu sem og samskiptum Brasilíu og Bandaríkjanna.Nauðsynlegt að halda áfram aðgerðum sem væru utan ramma laganna Það var stjórnandi CIA, William Colby, sem sendi Henry Kissinger, þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, minnisblaðið þann 11. apríl árið 1974. Í því er rakinn fundur sem Geisel átti með þremur hershöfðingjum úr brasilíska hernum nokkrum dögum áður. Á fundinum segir einn hershöfðinginn við Geisel að hann geti ekki litið framhjá andstæðingum stjórnar hans og hryðjuverkaógninni sem hann stendur frammi fyrir. „Það er nauðsynlegt að halda áfram aðgerðum sem eru utan ramma laganna gegn hættulegum andstæðingum,“ er haft eftir hershöfðingjanum Milton Tavares de Souza í minnisblaðinu. De Souza segir síðan Geisel að árið 1973 hafi 104 aftökur farið fram án dóms og laga gegn andstæðingum einræðisstjórnarinnar. Annar hershöfðingi segir að þessari stefnu verði að halda áfram en Geisel segir að hann vilji taka sér nokkra daga til þess að hugsa hvort svo skuli vera.Skýrslan sanni að Geisel gaf grænt ljós á grimmdarverk Nokkrum dögum síðar ákveður hann síðan að stefnunni varðandi aftökur án dóms og laga skuli framhaldið en að ítrustu varkárni skuli gætt að aðeins megi taka hættulega andstæðinga af lífi. Árið 2014 kom út skýrsla brasilískrar sannleiksnefndar um tíma einræðisstjórnarinnar. Samkvæmt henni voru 191 teknir af lífi af stjórninni á árunum 1964 og 1985 og 210 hurfu sporlaust. Formaður sannleiksnefndarinnar lýsir skjalinu sem undraverðu og segir að herinn eigi að taka ábyrgð á þessum grimmdarverkum. O Globo, eitt stærsta dagblað Brasilíu, fjallaði um minnisblaðið á forsíðu og sagði það sanna að Geisel hefði gefið grænt ljós á grimmdarverk.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira