Breiðablik með fullt hús eftir sigur á KR Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. maí 2018 21:07 Blikar fögnuðu sigri í Vesturbænum í kvöld vísir/bára
Þrír leikir fóru fram í fimmtu umferð Pepsi deildar kvenna í kvöld. Breiðablik jafnaði Þór/KA að stigum á toppi deildarinnar en bæði lið eru með fullt hús stiga eftir fimm leiki. Grindavík lyfti sér upp úr fallsætinu og Stjarnan hafði betur gegn HK/Víkingi. Breiðablik mætti KR í Vesturbænum og það tók Öglu Maríu Albertsdóttur aðeins tuttugu mínútur að koma Blikum yfir. Frábært skot upp í hægra hornið sem var óverjandi fyrir Hrafnhildi Agnarsdóttur í markinu. Gestirnir úr Kópavogi héldu áfram að sækja en náðu ekki að bæta við og staðan 1-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik hélt sókn Blika áfram og þær uppskáru á 84. mínútu þegar Berglind Björg Þorvalsdóttir skoraði upp úr hornspyrnu Öglu Maríu. Í Kórnum tóku nýliðar HK/Víkings á móti Stjörnunni. Eina mark leiksins kom seint í fyrri hálfleik þegar Birna Jóhannsdóttir skoraði eftir fyrirgjöf fyrirliðans Ásgerðar Stefaníu Baldursdóttur. Fyrsta mark hinnar ungu Birnu í sumar. Þrátt fyrir stórsókn Stjörnunnar þar sem HK/Víkingur bjargaði meðal annars þrisvar á marklínu á stuttum tíma undir lokin kom ekki annað mark í leikinn, 1-0 sigur staðreynd. Grindavík og Selfoss gerðu jafntefli suður með sjó og lyfti Grindavík sér upp af botni deildarinnar í áttunda sætið.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Handbolti Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Ederson nálgast Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ Sjá meira