Handtekin 31 ári eftir að lík dóttur þeirra fannst við þjóðveg í Frakklandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. júní 2018 15:15 Lík stúlkunnar fannst við þjóðveg A10 skammt frá borginni Blois. google maps
Franska lögreglan hefur handtekið foreldra stúlku sem fannst látin við þjóðveg í Frakklandi árið 1987. Var lík stúlkunnar afar illa farið en kennsl höfðu aldrei verið borin á líkið þar til nýlega þegar DNA-sýni sem tekið var úr bróður hennar í óskyldu máli tengdi þau saman. Málið hefur því verið óupplýst í 31 ár. Foreldrarnir verða hins vegar yfirheyrðir af dómara í dag og gætu verið ákærð fyrir morð. Ekki hefur verið greint frá því hverjir foreldararnir eru en talið er að þau séu á sjötugsaldri. Lögreglan hefur ekki tjáð sig neitt um málið en fréttir herma að foreldarnir hafi verið handteknir á þriðjudag. Lík stúlkunnar fannst við A10-þjóðveginn nálægt borginni Blois í ágúst 1987. Yfirvöld gátu ekki borið kennsl á hana á sínum tíma en talið var að hún hefði verið á milli þriggja og fimm ára gömul þegar hún lést. Miklir áverkar voru á líkinu og bar stúlkan þess merki að hafa verið beitt miklu og langvarandi ofbeldi. Þannig var hún með brotin bein og brunasár eftir straujárn. Stúlkan fékk viðurnefnið „litli píslarvotturinn á A10“ og hún lögð til hinstu hvílu í ómerktri gröf. Lögreglan hefur verið ráðþrota í málinu í áratugi. Árið 2012 var það opnað að nýju þegar mynd af stúlkunni var dreift og óskað eftir vitnum. DNA-sýnið var tekið úr bróður stúlkunnar í fyrra þegar hann var handtekinn fyrir ofbeldisglæp. Margra mánaða rannsókn leiddi lögreglu síðan til foreldra stúlkunnar.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira