Innlent

Ferðamenn geta lofað ábyrgri hegðun með því að ýta á hnapp

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varð fyrst til þess að ýta á hnappinn.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varð fyrst til þess að ýta á hnappinn. Íslandsstofa
Nú blasir áberandi hnappur við erlendum ferðamönnum á Keflavíkurflugvelli en með því að þrýsta á hann er því heitið að viðkomandi ferðamaður ætli sér að ferðast um Ísland með ábyrgum hætti.

Verkefnið er liður í herferð Íslandsstofu um Íslenska loforðið eða „The Icelandic Pledge“. Með samvinnu Isavia er hægt að ábyrgri hegðun strax við komuna til landsins.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra var fyrst til þess að ýta á hnappinn og hefur hér með heitið því að vera ábyrgur ferðamaður. Þetta kemur fram í tillkynningu frá Íslandsstofu.

Íslenska loforðið nær til átta skilyrða til að stuðla að ábyrgri ferðahegðun; að bera virðingu fyrir náttúrunni, að skilja við hana eins og komið var að henni, að keyra ekki utan vega, að koma sér ekki í hættulegar aðstæður við að taka myndir, að tjalda á viðeigandi tjaldsvæðum og að vera vel útbúinn á ferðalagi um Ísland.

Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri viðskiptasviðs ISAVIA, Inga Hlín Pálsdóttir forstöðumaður hjá Íslandsstofu, Gunnar Stefánsson hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg, Þuríður Aradóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Reykjaness, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Ketill Magnússon framkvæmdastjóri Festu – miðstöð um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, Jón Skafti Kristjánsson markaðsstjóri Icelandair.Íslandsstofa
Nú þegar hafa yfir 32.000 ferðamenn frá yfir 100 löndum strengd heitið. Ísland er fyrsta landið til að bjóða gestum sínum að heita því að ferðast um landið á ábyrgan og öruggan hátt og að ganga vel um náttúru landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×