Fótbolti

Útsláttarkeppnin hefst með tveimur stórleikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi fagnar marki sínu.
Lionel Messi fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Útsláttarkeppnin á HM í fótbolta hefst í dag með tveimur leikjum. Í Kazan mætast Frakkland og Argentína og í Sotsjí eigast Úrúgvæ og Portúgal við.

Þrátt fyrir að vera að fastagestir á HM og hafa unnið samtals þrjá heimsmeistaratitla er leikurinn í Kazan aðeins þriðji leikur Frakklands og Argentínu á heimsmeistaramóti frá upphafi. Argentínumenn unnu leiki liðanna 1930 og 1978. Frá tapinu fyrir Argentínu á HM fyrir 40 árum hefur Frakkland ekki tapað fyrir þjóð frá Suður-Ameríku á HM.

Hvorugt liðanna sýndi sínar bestu hliðar í riðlakeppninni. Frakkar áttu þó ekki í neinum vandræðum með að komast áfram, öfugt við Argentínumenn sem tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum þökk sé marki Marcos Rojo fjórum mínútum fyrir leikslok gegn Nígeríu.

Úrúgvæ er eina liðið sem vann alla sína leiki í riðlakeppninni án þess að fá á sig mark. Portúgal fékk á sig mark í uppbótartíma gegn Íran sem kom í veg fyrir að liðið ynni ­B-riðilinn. Evrópumeistararnir sluppu hins vegar vel þegar Mehdi Taremi klúðraði dauðafæri fyrir Írana eftir jöfnunarmarkið. Hefði hann skorað hefðu Portúgalar fallið úr leik.

Cristiano Ronaldo skoraði fjögur mörk í riðlakeppninni og er næstmarkahæsti leikmaður HM á eftir Harry Kane. Hann á hins vegar enn eftir að skora í útsláttarkeppni á HM og vonast til að bæta úr því í Sotsjí. Það verður þó enginn hægðarleikur gegn harðskeyttri vörn Úrúgvæ.

Á morgun halda 16-liða úrslitin áfram. Þá mætast Spánn og Rússland í Moskvu og Króatía og Danmörk í Nízhníj Novgorod. Rússar unnu fyrstu tvo leiki sína á HM með markatölunni 8-1 en var skellt harkalega niður á jörðina af Úrúgvæjum­ í lokaumferð riðlakeppninnar. Heimaliðið þarf að eiga fullkominn leik gegn Spánverjum til að komast áfram.

Króatía vann alla sína leiki í riðlakeppninni og var mjög sannfærandi. Lykilmenn liðsins mæta ferskir til leiks eftir að hafa fengið hvíld gegn Íslendingum á þriðjudaginn. Danir spiluðu þéttan varnarleik í riðlakeppninni og eina markið sem þeir fengu á sig kom úr vítaspyrnu. Þeir eru komnir í útsláttarkeppni HM í fyrsta sinn síðan 2002 en Króatar hafa ekki komist svona langt síðan 1998.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×