Lægð við Labrador sendir dótturlægð Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. júlí 2018 08:41 Góðviðrið stoppar stutt við. vísir/hanna
Næsta lægð sem landsmenn mega eiga von á að láti til sína taka er í startholunum við Labrador, austasta fylki Kanada, en lægðin sú mun senda dótturlægð til landsins og hreyfist hún allhratt austur á bóginn. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. „Þungbúinn morgunn heilsar landsmönnum, en skýjahulan brotnar fljótlega upp sunnan- og vestanlands og góðar líkur að sólin láti sjá sig eftir hádegi. Eins og við er að búast stendur góðviðrið stutt því næsta lægð er í startholunum við Labrador. Lægðin sú arna sendir til okkar dótturlægð, sem hreyfist allhratt austur á bóginn,“ segir í hugleiðingunum. Á morgun verði lægðin síðan yfir Grænlandshaf og mun þá snúast í sunnankalda með rigningu á vestanverðu landinu. Einnig má búast við smá vætu fyrir austan um kvöldið en til huggunar helst þó áfram fremur hlýtt í veðri.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga:Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skýjað, en sums staða lílsháttar væta fram eftir morgni og þokuloft við sjávarsíðuna.Hæg norðvestlæg eða vestlæg átt eftir hádegi og rofar til S- og V-lands, en stöku skúrir NA-til síðdegis. Vaxandi sunnanátt og þykknar upp seint í nótt, 8-15 m/s og fer að rigna á morgun, hvassast við V-ströndina, en þurrt A-til fram á kvöld. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á S-lands í dag, en NA-lands á morgun.Á föstudag:Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og rigning, en þurrt á A-verðu landinu til kvölds. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast NA-lands.Á laugardag:Suðvestlæg átt, víða 3-8 m/s, en norðlægari á Vestfjörðum. Víða dálítil væta, en þurrt að kalla eystra. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast fyrir austan.Á sunnudag:Vestlæg átt, 3-10 m/s, en norðlægari fyrir norðan. Væta í flestum landshlutum, en þurrt SA-til. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast á SA-landiÁ mánudag:Norðlæg átt og rigning eða súld á N-verðu landinu en skýjað með köflum og stöku skúrir syðra. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira