Myrti föður sinn og gróf hann í garðinum Sylvía Hall skrifar 14. júlí 2018 18:30 Frá vettvangi í janúar. Vísir/Getty
63 ára gömul kona frá Bretlandseyjum hefur verið dæmd í níu ára fangelsi fyrir að myrða föður sinn. Konan, Barbara Coombes, játaði morðið nú í janúar á þessu ári en tólf ár eru liðin frá atburðinum. Coombes var handtekinn þann 7. janúar þegar hún gekk sjálfviljug á lögreglustöð í Stockport og játaði morðið.Beitt ofbeldi í áratugi Í janúar árið 2006 var Coombes í garði föður síns að sinna garðyrkjustörfum þegar hún gekk inn í eldhúsið og fann kassa fullan af klámfengnum myndum af börnum, þar á meðal henni sjálfri. Hún segir föður sinn hafa beitt sig andlegu, líkamlegu og grófu kynferðislegu ofbeldi frá 11 ára aldri en þetta atvik hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Hún hafi gripið skóflu sem hún notaði við garðyrkjustörfin, gengið að föður sínum og slegið hann í hnakkann tvívegis áður en hún skar hann á háls með skóflunni. Því næst hafi hún vafið líkinu í teppi, dregið það út í garðinn og falið það á bakvið tré. Degi síðar pantaði hún tonn af jarðveg sem hún notaði til þess að grafa lík föður síns í garðinum, aðeins nokkrum metrum frá svefnhergi sínu.Sagði föður sinn hafa dáið á spítala Coombes hélt morðinu leyndu í tólf ár. Hún sagði fjölskyldumeðlimum að faðir hennar hefði látist á spítala, ýmist eftir blóðeitrun eða hjartaáfall, og verið brenndur fljótlega eftir andlátið. Enginn tilkynnti um hvarf mannsins eftir morðið og gerðu nágrannar hans ráð fyrir því að hann hefði flutt eða einfaldlega dáið.The first images of Barbara Coombes, and the back garden where she buried her father for 12 years, have been released. Recap this morning's sentencing here https://t.co/fEFqIIGaMVpic.twitter.com/JrmDeu4vDZ — Andrew Bardsley (@ABardsleyMEN) 11 July 2018 Síðastliðin tólf ár hefur Coombes búið í húsi föður síns og þegið rúmlega 25 milljónir krónur í bætur sem ætlaðar voru honum. Degi fyrir játninguna hafði ríkisstarfsmaður óskað eftir fundi með henni vegna grunsemda um húsnæði hennar og bæturnar, og telur lögregla það hafa verið ástæðu játningarinnar.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Sjá meira