Leifar af fellibyl, hæðarhryggur og svo enn ein lægðin Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. júlí 2018 07:26 Ekki beint sumarlegasta myndin en samt ansi lýsandi fyrir sumarið á suðvesturhorninu. vísir/vilhelm
Leifar fellibylnum Chris sem væntanlegar eru upp að landinu aðfaranótt sunnudags munu hafa í för með sér rigningu í öllum landshlutum á sunnudag. Líklegast verður þó ekki mikill vindur með úrkomunni ef marka má hugleiðingar veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Það mun síðan rigna norðanlands á mánudag en á þriðjudag er von um hæðarhrygg með björtu veðri um mest allt lands. „Hryggilegast þó við þennan hrygg er að hann stendur stutt við og enn ein lægðin er væntanleg á miðvikudag. Áfram verða mestu hlýindin á Austur- og Norðausturlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Í dag má annars búast við skýjuðu veðri og þokulofti sums staðar á vestanverðu landinu en skýjað með köflum austanlands. Það mun rigna seint í nótt vestanlands en svo syttir upp að mestu undir hádegi á morgun. Annað kvöld er síðan búist við austan 5 til 13 metrum á sekúndu með hellirigningu á sunnanverðu landinu. Rigningin mun svo færast norður yfir heiðina um nóttina en smám saman styttir upp sunnanlands.Veðurhorfur á landinu:Fremur hæg suðvestlæg átt og lágskýjað en úrkomulítið um landið vestanvert, en bjartviðri með köflum austanlands. Suðaustan 5-13 og rigning seint í nótt vestanlands en úrkomuminna undir hádegi á morgun. Áfram bjartviðri austanlands. Austlæg átt, 5-13 og talsverð eða mikil rigning á sunnanverðu landinu annað kvöld. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.Á föstudag:Suðaustan 5-13 m/s. Rigning eða súld S- og V-lands og talsverð eða mikil þar um kvöldið. Þurrt NA-til. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast norðaustanlands.Á laugardag:Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-10, og víða vætusamt fyrripartinn, en síðan mun úrkomuminna. Rigning sunnanlands um nóttina. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi.Á sunnudag:Austlæg og síðar breytileg átt með vætu um mest allt land, einkum norðvestantil. Hiti 8 til 20 stig, svalast á N-verðum Vestfjörðum.Á mánudag:Norðan og norðvestan 3-10 og rigning um N- og V-vert landið. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast sunnanlands.Á þriðjudag:Hæg breytileg átt með bjartviðri um mest allt land. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast V-lands.Á miðvikudag:Suðaustan átt og rigning S-lands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast NA-lands.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira