Grunur um eld í vél American Airlines sem flogið var til Keflavíkur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. júlí 2018 11:17 Boeing 777 flugvél hjá American Airlines.
Lenda þurfti flugvél American Airlines á leið frá Bandaríkjunum til Parísar á Keflavíkurflugvelli snemma í morgun eftir að ósk barst þess efnis til flugmálastjórnar. Samkvæmt heimildum Vísis var talið að hugsanlega væri eldur í flugvélinni og var Keflavík næsti flugvöllur. Ekki sást þó neinn reykur og gekk vel að lenda vélinni sem nú er í Keflavík. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, staðfestir við Vísi að vélinni hafi verið lent í morgun eftir að upp kom tæknileg bilun í vélinni, þess valdandi að lenda þurfti vélinni hér. Í henni hafi verið rúmlega 200 farþegar sem fluttir hafi verið úr flugvélinni og í flugstöðvarbygginguna þar sem þeir bíða frekari tíðinda frá American Airlines. Guðjón vísar annars á American Airlines varðandi frekari upplýsingar. Um er að ræða Boeing 777 vél American Airlines. Samkvæmt heimildum Vísis er ekkert sem bendir til þess að eldur hafi komið upp í vélinni. Líklegra er talið að um bilaðan skynjara sé að ræða. Viðbúnaðarstig var rautt í Keflavík í morgun. Það segir þó ekki til um alvarleika þess sem gerist heldur hvernig viðbúnað þurfi að hafa í Keflavík til dæmis með tilliti til farþegafjölda í flugvél.
Fréttir af flugi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira