Þrír létust í árás á ljósmæðramiðstöð í Afganistan Sylvía Hall skrifar 28. júlí 2018 17:08 Frá vettvangi árásarinnar í morgun. Vísir/Getty
Í það minnsta þrír létu lífið og átta slösuðust þegar vígamenn réðust á þjálfunarmiðstöð fyrir ljósmæður í Jalalabad í Afganistan í morgun. Öryggissveitir hersins náðu yfirtökum á ástandinu eftir sex klukkutíma skotbardaga. Vígamennirnir höfðu sprengt sprengiefni og hófu skothríð í miðstöðinni rétt fyrir hádegi að staðartíma. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni, en vígamenn á vegum íslamska ríkisins hafa lýst yfir ábyrgð á nýskeðum árásum á svæðinu. Talíbanar neita því að hafa átt þátt í árásinni. 61 ljósmóður og tveimur börnum var bjargað úr miðstöðinni, en tveir öryggisverðir og bílstjóri létu lífið í árásinni. Þrír meðlimir öryggissveita særðust ásamt þremur borgurum og tveimur starfsmönnum miðstöðvarinnar. Einn árásarmannanna lést þegar hann sprengdi sprengjuvesti í miðstöðinni en annar var drepinn af öryggissveitum. Miðstöðin sér um tveggja ára þjálfun fyrir verðandi ljósmæður á svæðinu. Ekki er vitað hvers vegna ráðist var á miðstöðina, en í landinu eru margir andvígir því að ógiftar konur vinni utan heimilis. Í Afganistan er mikil vöntun á ljósmæðrum og á meirihluti fæðinga í landinu sér stað án hjálpar ljósmóður. Þá er hlutfall dauðsfalla við fæðingu með því hæsta í heiminum.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira