Conor McGregor kokhraustur í Central Park og segir stutt í bardaga við Khabib Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2018 16:00 Conor varð tvöfaldur heimsmeistari í UFC í nóvember 2016 en hefur ekki barist síðan þá. vísir/getty
Það lítur allt út fyrir að það verði af bardaga á milli Conor McGregor og Khabib Nurmagomedov á næstunni. Útsendari TMZ-síðunnar hittu á Conor McGregor í Central Park í New York og þar var kappinn kokhraustur og talaði um komandi bardaga sinn við Khabib. Það er búist við að bardaginn fari fram í október í Las Vegas. Conor McGregor hefur ekki barist í átthyrningnum síðan árið 2016 en hann keppti síðast í hnefaleikum á móti Floyd Mayweather í fyrra. Síðasti UFC-bardagi Conor McGregor var á móti Eddie Alvarez í nóvember 2016 en Conor vann hann á rothöggi í annarri lotu. Conor varð þá tvöfaldur heimsmeistari en hefur ekki barist í MMA síðan þá. Conor McGregor montaði sig af því í viðtalinu við TMZ að hann væri þegar kominn í bardagaform en hann var þarna að enda æfingar sínar í New York. Það má sjá hann æfa í Central Park hér fyrir neðan. Khabib Nurmagomedov er 29 ára Rússi sem hefur unnið alla 26 bardaga sína en sá síðasti var á móti Al Iaquinta í apríl síðastliðnum. Nurmagomedov er 10-0 í bardögum innan UFC. Conor McGregor hefur unnið 21 af 24 bardögum sínum en hann tapaði síðast á móti Nate Diaz 5. mars 2016 sem er eina tapið hans í bardaga innan UFC.
MMA Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Sjá meira