Beiðni um gögn í þyrlumálinu í skoðun hjá Landhelgisgæslunni Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. ágúst 2018 08:53 Landhelgisgæslan íhugar nú hvort Fréttablaðið fái afrit samskipta stofnunarinnar við Airbus. Gæslan segir Airbus fullyrða að nýlegt hrap þyrlu í Suður-Kóreu virðist ekki tengjast gírkassa frá fyrirtækinu. Airbus hefur áður sett fram rangar fullyrðingar varðandi þyrluslys. Skjáskot
Landhelgisgæslan segir að skoðun á máli „er varðar leigu á tveimur Super Puma H225 þyrlum í eigu norska fyrirtækisins Knut Axel Ugland Holding AS“ sé enn í gangi. „Og er gert ráð fyrir hún taki nokkrar vikur til viðbótar,“ segir í svari frá Ásgeiri Erlendssyni upplýsingafulltrúa. „Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að þyrla í eigu suðurkóreska hersins, sem er annarrar tegundar, hefði farist fyrr í mánuðinum,“ segir í svari Ásgeirs. „Samkvæmt upplýsingum sem Landhelgisgæslan hefur frá Airbus og fleirum virðist ekki vera um eins atvik að ræða og fyrri slys sem tengst hafa bilunum í gírkassa. Við tökum þessu alvarlega og teljum ástæðu til að skoða málið vandlega.“ Í kjölfar fréttar Fréttablaðsins sem Ásgeir vitnar til kom einmitt fram hjá fulltrúum Landhelgisgæslunnar í frétt RÚV að Airbus teldi að ástæðu þess að spaðar losnuðu af herþyrlu í Suður-Kóreu 17. júlí síðastliðinn mætti ekki rekja til gírkassa vélarinnar. Fréttablaðið hafði bent á að Airbus framleiðir gírkassa í umrædda þyrlutegund sem var kyrrsett um skeið í kjölfar mannskæðs slyss í Noregi 2016. Óvíst er að hægt sé að treysta upplýsingum Airbus í þessum efnum. Um mánuði eftir að Super Puma þyrla frá Airbus hrapaði í Noregi 29. apríl 2016 gaf Airbus út yfirlýsingu um hugsanlegar orsakir.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Það þótti óvenjulegt á upphafsdögum rannsóknar að því er kom fram í frétt Reuters-fréttastofunnar. Airbus sagði að líklegast hefðu festingar gefið sig frekar en gírkassinn og þess vegna hefðu spaðar þyrlunnar losnað af og hún hrapað. Hið rétta var, eins flugslysanefnd í Noregi hafði þá þegar sagt mögulegt og rannsókn nefndarinnar leiddi síðan í ljós, að einmitt málmþreyta í gírkassa var orsök slyssins. Sambærilegur galli varð til þess að Super Puma þyrla hrapaði í Skotlandi árið 2009. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu þá lýsir norska flugslysanefndin í lokaskýrslu sinni um slysið 2016 því hvernig Airbus sýndi ónógan samstarfsvilja við rannsóknina. Eru yfirvöld hvött til að herða reglur um upplýsingaskyldu flugvélaframleiðenda. Þá hefur Airbus verið sakað um hafa leynt upplýsingum eftir slysið í Skotlandi 2009. Óvíst er hvenær niðurstöður rannsóknar á þyrluslysinu í Suður-Kóreu á dögunum liggja fyrir. Á blaðamannafundi eftir slysið lýstu aðstandendur hermannanna sem fórust strax áhyggjum af því að orsökin yrði aldrei opinberuð þar sem rannsóknin væri alfarið í höndum hersins og án allrar aðkomu flugslysanefndar í landinu. Landhelgisgæslan gekk í lok maí að „tilboði aldarinnar“ frá þyrluleigusala sínum, Knut Axel Ugland Holding AS, um að taka við tveimur Super Puma H225 þyrlum í stað tveggja eldri véla. Nýju vélarnar eru með gírkassa þeirrar tegundar sem var í þyrlunum sem fórust í fyrrnefndum slysum. Þótt Airbus hafi gert tileknar ráðstafanir telur norska flugslysanefndin að nauðsynlegt sé að hanna gírkassana upp á nýtt. „Samkomulagið sem gert var við norska fyrirtækið í lok maí felur ekki í sér bindandi leigusamning fyrir Landhelgisgæsluna,“ segir í svari Landhelgisgæslunnar er spurt er hvort halda eigi nýja samningnum til streitu. „Öryggi áhafna okkar og annarra skiptir okkur höfuðmáli og ef skoðunin leiðir í ljós að það er ekki tryggt hefur Landhelgisgæslan öll tækifæri til að slíta samkomulaginu.“ Í ljósi fullyrðinganna um að Airbus og aðrir teldu slysið í Suður-Kóreu hafa orðið með öðrum hætti en slysin í Noregi og Skotlandi óskaði Fréttablaðið eftir því fyrir viku að fá afrit af þeim upplýsingum. Óljóst er hvort orðið verður við því. „Landhelgisgæslan mun skoða beiðni Fréttablaðsins um afrit af samskiptum eins og óskað hefur verið eftir,“ segir í svari upplýsingafulltrúans. Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar að vísa hollenskri konu, Mirjam Foekje van Twuijver, úr landi en árið 2016 var hún dæmd í 8 ára fangelsi fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning. Morgunblaðið greinir frá þessu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira