Hafa komist yfir í fimm leikjum á móti Val frá 2015 en aðeins unnið einu sinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2018 12:30 Baráttumynd frá leik Vals og Stjörnunnar í fyrrasumar. Fréttablaðið/Anton Brink
Stjarnan tekur á móti Val í Pepsi-deild karla í kvöld í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar. Margir líta á þennan leik á Samsung vellinum í Garðabæ sem hálfgerðan úrslitaleik um Íslandsmeistaraititlinn í ár. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Hörður Magnússon og félagar í Pepsimörkunum verða með upphitun fyrir leik og gera hann síðan upp eftir hann. Liðin hafa mæst sjö sinnum í Pepsi-deildinni með núverandi þjálfara eða frá því að Ólafur Jóhannesson tók við Valsliðinu fyrir 2015 tímabilið. Valsmenn hafa unnið fjóra af þessum leikjum og fengið níu fleiri stig (14 á móti 5). Það sem er athyglisvert við það er að Stjörnumenn hafa komist yfir í fimm leikjanna en aðeins einu sinni náð að vinna. Stjörnumenn komust meira að segja tvisvar sinnum yfir í leik liðanna í maí en Valsmenn jöfnuðu í bæði skiptin. Eini sigur Stjörnunnar á Val á síðustu fjórum tímabilum kom á Valsvellinum á Hlíðarenda 3. október 2015 eða í lokaumferðinni það sumar. Þetta var jafnframt fyrsti heimaleikur Valsmanna á nýja gervigrasinu sínu á Hlíðarenda eftir að hafa skipt út grasinu fyrr um sumarið. Stjörnumenn hafa alls verið yfir í 162 mínútur í þessum sjö leikjum en það hefur samt bara skilað þeim fimm stigum. Valsmenn sem hafa verið yfir í 153 mínútur, eða níu mínútum skemur, hafa aftur á móti fengið fjórtán stig.Síðustu sjö leikir Vals og Stjörnunnar í Pepsi-deild karla:- 2018 - 18. maí á Hlíðarenda: 2-2 jafntefli (Stjarnan komst í 1-0 og 2-1)- 2017 - 24. september í Garðabæ: 2-1 sigur Vals 9. júlí á Hlíðarenda: 1-1 jafntefli (Stjarnan komst í 1-0)- 2016 - 11. september í Garðabæ: 3-2 sigur Vals (Stjarnan komst í 2-0) 5. júní á Hlíðarenda: 2-0 sigur Vals- 2015 - 3. október á Hlíðarenda: 2-1 sigur Stjörnunnar (Stjarnan komst í 2-0) 10. júlí í Garðabæ: 2-1 sigur Vals (Stjarnan komst í 1-0)Jöfnunarmörk Valsmanna í leikjunum frá 2015-2018: 1 - Patrick Pedersen (2018) 1 - Sigurður Egill Lárusson (2018) 1 - Bjarni Ólafur Eiríksson (2017) 1 - Andreas Albech (2016) 1 - Sjálfsmark (2015)Sigurmörk Valsmanna í leikjunum frá 2015-2018: 1 - Andreas Albech (2016) 1 - Kristinn Freyr Sigurðsson (2015)Skipting forystu í Pepsideildar leikjum Vals og Stjörnunnar frá 2015-2018: 315 mínútur - Jafnt 162 mínútur - Stjarnan yfir (samtals 5 stig) 153 mínútur - Valur yfir (samtlas 14 stig)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira