Ferðamaður grunaður um nauðgun úrskurðaður í farbann Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. ágúst 2018 17:14 Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um gróf kynferðisbrot á börnum. Vísir/ernir
Erlendur ferðamaður hefur verið úrskurðaður í farbann til 22. október næstkomandi að kröfu lögreglunnar á Vesturlandi. Maðurinn er grunaður um nauðgun og sat hann í gæsluvarðhaldi þangað til í gær en var sleppt úr haldi.Í farbannsúrskurði Landsréttar segir að maðurinn hafi komið hingað til lands sem ferðamaður. Er hann grunaður um hafa nauðgað konu fyrr í sumar. Í málinu liggja fyrir skýrslur tveggja vinkvenna konunnar sem lögregla telur að styrkji frásögn brotaþola. Þá segir einnig í úrskurði Landsréttar að við yfirheyrslur hafi framburður mannsins verið á allt annan veg en framburður brotaþola. Einnig liggja fyrir framburður bróður mannsins sem og félaga sem styðji frásögn ferðamannsins að hluta, en staðfesti einnig viðbrögð brotaþola og uppnám hennar eftir atburðinn. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hefur maðurinn lýst því yfir að hann hyggist fara af landinu þegar löglegum dvalartíma hans ljúki hér á landi. Telur lögregla að verulega hætta sé á maðurinn muni reyna að yfirgefa Ísland í þeim tilgangi að koma sér með einum eða öðrum hætti undan rannsókn, málsókn eða fullnustu refsingar. Féllst Landsréttur á það veruleg hætta væri á að maðurinn myndi reyna að yfirgefa landið og var hann því úrskurðaður í farbann til 22. október.
Dómsmál Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira