Myndin er innblásin af reynslu Uglu sem er ötul talsmanneskja trans fólks á Íslandi en höfundar og leikstjórar myndarinnar eru þær Hallfríður Þóra Tryggvadóttir og Vala Ómarsdóttir.
„Við erum að reyna að forðast klisjur sem eru vanalega í kvikmyndum um trans manneskjur og höfum unnið mjög náið með Uglu síðustu þrjú ár,“ segir Hallfríður.
„Við sækjum innblástur í áhrifarík augnablik í lífi hennar og eftir miklar pælingar komumst við að því að kjarni myndarinnar yrði að vera frelsið sem fylgir því að fá að vera maður sjálfur, enda eru það sönn mannréttindi,“ bætir Vala við.

Í gær fór fram forsýning á stuttmyndinni fyrir menntaskólanema í samstarfi við Samtökin ’78. Myndin keppir um titilinn „besta íslenska stuttmyndin“ á kvikmyndahátíðinni RIFF og verður frumsýnd á morgun eins og áður er sagt. Sýning númer tvö verður miðvikudaginn, 3. október, klukkan 15.15, líka í Bíói Paradís.