Pepsimörkin: „Ótrúleg ákvörðun“ að dæma mark af Stjörnunni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. september 2018 13:30 S2 Sport
Stjarnan svo gott sem kastaði frá sér möguleikum sínum á Íslandsmeistaratitlinum með því að tapa fyrir ÍBV á sunnudaginn. Þeir hefðu þó átt að fá í það minnsta stig úr leiknum því Stjarnan skoraði mark sem dæmt var af, ranglega að mati sérfræðinga Pepsimarkanna Stjarnan var þremur stigum á eftir Val fyrir næst síðustu umferðina á sunnudag. Valur tapaði fyrir FH og því hefði Stjarnan getað jafnað Val að stigum með sigri. Í staðinn er Breiðablik komið yfir Stjörnuna í annað sætið og í meiri séns, þó Valsmenn séu með pálmann í höndunum. Í stöðunni 1-1 fengu Stjörnumenn horn og Baldur Sigurðsson skoraði með skalla. Markið var hins vegar dæmt af og Baldur dæmdur brotlegur. Sérfræðingar Pepsimarkanna á Stöð 2 Sport voru á þeirri skoðun að markið ætti að standa. „Við áttum okkur ekki alveg á því hvað er verið að dæma á,“ sagði Þorvaldur Örlygsson. „Þarna sjáum við Sindra [Snæ Magnússon] halda utan um Baldur, hann heldur utan um mittið á honum og hálsinn á honum. Í rauninni er Sindri að brjóta allan tímann að mínu viti.“ Fjórum mínútum seinna skoraði ÍBV og vann leikinn 2-1. „Mér finnst bara klárt mál að það var aldrei neitt á þetta og ótrúleg ákvörðun að flauta aukaspyrnu á þetta,“ sagði Reynir Leósson. Umræðuna og atvikið má sjá í klippunni hér að neðan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira