Segir Svandísi styrkja stöðu sígarettunnar Jakob Bjarnar skrifar 21. september 2018 13:38 Ólafur Stephensen telur einsýnt að ný reglugerð muni ganga að gufuvélabransanum dauðum. Hann telur reglugerðina með ólíkindum vanhugsaða.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri hjá Félagi atvinnurekenda, telur einsýnt að ný reglugerð muni kæfa rafrettubransann með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Hann telur um afar vanhugsaða reglugerð að ræða, svo ekki sé meira sagt.Krefjast þess að reglugerðin verði felld úr gildi Ný reglugerð sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra setti í byrjun mánaðarins hefur nú þegar tekið gildi. FA gerir alvarlegar athugasemdir við í bréfi sem þeir hafa sent heilbrigðisráðherra. Þar er sett fram sú krafa að reglugerðin verði þegar í stað felld úr gildi. Reglugerðin fjallar um tilkynningar til Neytendastofu um markaðssetningu rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur sem innihalda nikótín. Samkvæmt reglugerðinni verða framleiðendur og innflytjendur rafrettna og áfyllinga fyrir þær að tilkynna allar vörur til Neytendastofu sex mánuðum áður en vörurnar eru settar á markað. Neytendastofa tekur síðan afstöðu til þess hvort varan uppfyllir öryggisstaðla.Gjaldið sem Neytendastofu er ætlað að taka fyrir hverja tilkynningu er 75.000 krónur.Þetta kemur fram á vef FA. Vísir ræddi við Ólaf sem er furðulostinn vegna þessara aðgerða Svandísar.Sala á sígarettum frá 1979 til 2017. Grafið er unnið af Guðmundi Karli en byggt á sölutölum ÁTVR.Vilja kæfa bransann í fæðingu „Ekkert samráð var haft við innflytjendur eða seljendur rafrettna við samningu þessarar reglugerðar. Enda tekur hún ekkert mið af raunveruleikanum á þessum markaði. Það verður ekki annað sé en ætlunin sé að kæfa þennan bransa í fæðingu. Og þar með er þá heilbrigðisráðherra, meðvitað eða ómeðvitað, að styrkja stöðu sígarettunnar,“ segir Ólafur. Sé litið til sölutalna útgefinna frá ÁTVR, eða talanbrunns Landlæknisembættisins má ætla að tóbaksreykingar hafi dregist verulega saman. Þær eru hvergi minni en á Íslandi. Daglegu reykingarfólki fækkaði úr 35 þúsund (14% landsmanna) í 22 þúsund (9% landsmanna) frá 2014 til 2017. Guðmundur Karl Snæbjörnsson læknir greinir augljósa fylgni milli þess að gufuvélarnar eða E-sigarettur komu til sögunnar og svo þessarar staðreyndar.Guðmundur Karl Snæbjörnsson læknir.fbl/anton brinkFólk í ráðuneytinu veit ekkert hvað gerir „Reykingarnar eru hríðfallandi eins og við höfum aldrei áður séð séð. Stærstu orsakavaldarnir eru munntóbakið og veipurnar sem eru klárlega að hreinsa reykingarnar í burtu,“ sagði Guðmundur Karl í samtali við Vísi fyrr á árinu. Hann hefur látið þessi mál mjög til sín taka og telur gufuvélina, eða veipu eins og hann kallar tækið, mikla blessun og leika lykilhlutverk í baráttunni gegn reykingum. Yfirlýst markmið stjórnvalda er að draga úr reykingum og því er spurt hvað í ósköpunum þeim gangi til með þessari reglugerð? Ólafur Stephensen segir erfitt um að segja: „Mögulega er tilgangurinn beinlínis að drepa þessa atvinnugrein. En, það gæti líka verið að í velferðarráðuneytinu starfi bara ekki fólk sem veit hvernig viðskiptalífið gengur fyrir sig og hefur því ekki skilning á afleiðingum gjörða sinna.“
Áfengi og tóbak Heilbrigðismál Viðskipti Tengdar fréttir Reykingar hvergi minni en á Íslandi Níu prósent eða 22 þúsund Íslendinga reykja. Slíkar tölur hafa ekki sést fyrr. 2. mars 2018 10:17 Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Reykingar hvergi minni en á Íslandi Níu prósent eða 22 þúsund Íslendinga reykja. Slíkar tölur hafa ekki sést fyrr. 2. mars 2018 10:17