Í tilefni þess að nú eru tíu ár liðin frá alþjóðlegu fjármálakreppunni eru margir fræðimenn við ýmsar stofnanir að velta fyrir sér sömu spurningunni um þessar mundir.
Er önnur alþjóðleg fjármálakreppa handan við hornið?
„Það mun alltaf koma önnur fjármálakreppa. Sú skoðun að fjármálakreppa geti ekki orðið í þróuðum ríkjum og sú skoðun að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fáist aðeins við fjármálakreppu á nýjum mörkuðum í þróunarríkjum en ekki í þróuðum ríkjum er einfaldlega röng,“ segir Edwin M. Truman, hagfræðingur hjá Peterson Institute.
Aðspurður hvort hann telji að við sjáum kreppu af þessari stærðargráðu á næstu árum svaraði hann því til að það sé ekki líklegt. „Nei, það tel ég ekki“.

Efnahagur Evrópu of hægvirkur til að skapa stórar bólur
Adam Tooze, prófessor í sagnfræði við Columbia-háskóla í New York, segir að Efnahagur Evrópu sé of hægvirkur til að skapa stórar bólur en bætir við að aldrei megi útiloka möguleika á alheimskreppu.
„Ég tel að efnahagslíf heimsins sé í talsvert góðu jafnvægi og nokkuð öruggt á þessari stundu en við eigum ekki að útiloka þann möguleika að þetta geti gerst aftur og þá af annarri stærðargráðu,“ segir Barry Bosworth.