Handbolti

Tandri Már skoraði tvö í sigri Skjern

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tandri Már Konráðsson, leikmaður Skjern.
Tandri Már Konráðsson, leikmaður Skjern. vísir/anton
Danmerkurmeistarar Skjern unnu eins marks sigur á Århus í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Gestirnir í Skjern byrjuðu leikinn betur og voru með góða forystu um miðjan fyrri hálfleikinn. Heimamenn náðu hins vegar að minnka muninn og var staðan 11-12 í hálfleik.

Heimamenn komust yfir strax í upphafi seinni hálfleik og héldu þeirri forystu þar til um tíu mínútur voru eftir af leiknum. Leikurinn var í járnum síðustu mínúturnar en gestirnir voru skrefinu á undan og fóru að lokum með 23-24 sigur.

Tandri Már Konráðsson skoraði tvö mörk fyrir Skjern sem er nú komið með átta stig úr sjö leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×