Hrólfur axlar ábyrgð en vill uppbyggilegri umræðu í braggamálinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. október 2018 10:37 Hrólfur Jónsson, fyrrverandi skrifstofustjóri eignaþróunar hjá Reykjavíkurborg, kallar eftir uppbyggilegri umræðu um braggana eða húsin í Nauthólsvík. Vísir
Hrólfur Jónsson, fyrrverandi skrifstofustjóri skrifstofu eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg, segir að ríkt hafi óvissa um kostnað við braggann í Nauthólsvík. Slík óvissa sé alltaf fyrir hendi þegar ráðist er í breytingar á gömlu húsnæði. Þetta kom fram í máli Hrólfs í Morgunútvarpinu í morgun en þar viðurkenndi hann mistök og sagði framúrkeyrslu kostnaðar á sína ábyrgð. Hrólfur, sem var stjórnandi hjá borginni í á fjórða áratug og tók við starfinu árið 2012, lét af störfum hjá borginni í apríl síðastliðnum. Hann segir liggja ljóst fyrir að 120 milljónum króna hafi verið varið í verkefnið án þess að fyrir lægi heimild til þess. „Það voru auðvitað bara mistök sem ég tek á mig,“ segir Hrólfur.Blaðamenn virða fyrir sér hin umtöluð dönsk strá.visir/villhelmVill að innri endurskoðandi fái andrými Kostnaður við endurbygginguna fór úr áætluðum 155 milljónum í 415 milljónir. Hrólfur sagði að borgarfulltrúar hefðu ekki verið meðvitaðir um framúrkeyrslu verkefnisins fyrr en í ágúst síðastliðnum. Þá lagði fjármálahópur borgarinnar spilin á borðið þegar endurskoða átti fjárfestingaráætlunina síðsumars. Hrólfur sagði mikilvægt að fólk gæfi innri endurskoðanda tíma til að fara yfir málið. Þá kæmi í ljós hvernig þetta hefði þróast. Þetta hefði ekki verið vegna einnar ákvörðunar. Rifjaði hann upp störf sín hjá slökkviliðinu á árum áður til samanburðar. „Ég var lengi í slökkviliðinu. Þú mætir á eldstað og veist ekki neitt. Það eru þrjár hurðir og þú þarft að fara inn um einhverja þeirra. Þú getur ekki annað.“ Hrólfur segir ástæðu þess að hann sé til í að ræða málin svo opinskátt vera að hann starfi ekki lengur hjá borginni. Hann sé ósáttur við umræðuna enda líði starfsfólki borgarinnar illa.Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sem gagnrýnt hefur meirihlutann harðlega í málinu.Vísir/VilhelmEkki sammála að verkefnið sé endilega klúður „Það er þannig að þessi pólitíski slagur sem er núna í gangi í Reykjavíkurborg hefur gríðarlega slæm áhrif á starfsfólk Reykjavíkurborgar og það á mjög erfitt með að verja sig vegna þess að um leið og það gerir það að þá er því um leið borið það á brýn að það sé að draga taum einhverra stjórnmálamanna. Ég er hættur störfum og því get ég komið hér.“ Þáttastjórnandinn Sigmar Guðmundsson fullyrti að verkefnið væri klúður. „Það er ekkert endilega víst,“ sagði Hrólfur. Minnihlutinn í borginni hafi farið offari vegna málsins. „Já, mér finnst það. Það á segja sem svo að þessi framkvæmd, þó það hafi ekki verið meiningin, að hún sé saga stríðsins. Auðvitað færðu Íslendingar fórnir og urðu vissulega ríkir, í þessu verkefni er verið að fórna fólki en eftir standa glæsileg mannvirki.“ Þá hvetur hann til uppbyggilegrar umræðu. Að rætt verði um hús en ekki bragga. Endalaust sé rætt um strá en fólk skilji ekkert hvað sé á bak við stráin. Nú sé verið að ræða um reikninga vegna snitsel. „Finnst þér þetta uppbyggileg umræða?“Tengd skjölSundurliðaðir reikningar vegna braggans í Nauthólsvík (567 síður)
Braggamálið Tengdar fréttir „Þetta er ljótt. Þetta er ógeðslegt" Mikil heift á báða bóga vegna veikinda Dags og braggamálsins. 17. október 2018 23:00 Tekist á um ábyrgð í braggamálinu langt fram á nótt: „Lætur í veðri vaka að hann hafi ekki vitað af þessum framúrkeyrslum“ Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði að það yrði að teljast óábyrg fjármálastjórnun að skattfé borgarbúa sé sólundað með þeim hætti að framúrkeyrsla verkefna fari fram hjá borgarstjóra og án hans vitundar. 17. október 2018 00:34 Samfylking dalar og ábyrgðin sögð Dags í Braggamáli Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærsti flokkurinn í borginni. Vinstri græn og Píratar bæta við sig. Flestir á því að borgarstjóri beri ábyrgð í Braggamáli. 16. október 2018 06:00 Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Sjá meira
„Þetta er ljótt. Þetta er ógeðslegt" Mikil heift á báða bóga vegna veikinda Dags og braggamálsins. 17. október 2018 23:00
Tekist á um ábyrgð í braggamálinu langt fram á nótt: „Lætur í veðri vaka að hann hafi ekki vitað af þessum framúrkeyrslum“ Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði að það yrði að teljast óábyrg fjármálastjórnun að skattfé borgarbúa sé sólundað með þeim hætti að framúrkeyrsla verkefna fari fram hjá borgarstjóra og án hans vitundar. 17. október 2018 00:34
Samfylking dalar og ábyrgðin sögð Dags í Braggamáli Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærsti flokkurinn í borginni. Vinstri græn og Píratar bæta við sig. Flestir á því að borgarstjóri beri ábyrgð í Braggamáli. 16. október 2018 06:00