Elsta ósnortna skipsflak í heimi fannst í Svartahafinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. október 2018 07:45 Flakið er 23 metra langt og er talið er vera frá tímum Forn-Grikkja. Fundurinn er talinn afar merkilegur.
Fornleifafræðingar telja sig hafa fundið elsta ósnortna skipsflak sem fundist hefur í heiminum á botni Svartahafs. Svo virðist sem flakið hafi legið á hafsbotni í meira en 2400 ár en fjallað er um málið á vef Guardian. Flakið er 23 metra langt og er talið er vera frá tímum Forn-Grikkja. Mastur þess, stýri og þóftur eru öll á sínum stað en sérfræðingar segja að skortur á súrefni svo djúpt í Svartahafinu hafi gert það að verkum að skipsflakið hefur varðveist eins vel og raun ber vitni. „Ósnortið skip frá klassískri fornöld, sem liggur á meira en tveggja kílómetra dýpi, ég hefði aldrei trúað því að það væri mögulegt,“ segir Jon Adams, prófessorinn sem fer fyrir rannsóknarleiðangrinum í Svartahafinu. Hann segir að fundurinn muni breyta skilningi vísindamanna á skipum og siglingum á fornöld. Talið er að skipið hafi verið flutningaskip af þeirri tegund sem vísindamenn segja að hafi aðeins sést á forn-grískum leirmunum eins og á Sírenuvasanum (e. Siren Vase) sem geymdur er á British Museum. Vísindamennirnir sem fundu skipsflakið segja að þeir ætli að láta það í friði þar sem það fannst en lítill bútur úr því hafði þó verið greindur á rannsóknarstofu í háskólanum í Southampton. Sú greining staðfesti að skipsflakið væri elsta ósnortna skipsflak sem fundist hefur.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira