Ópera um alla Reykjavík 20. október 2018 09:00 Guja Sandholt og Ása Fanney Gestsdóttir söngkonur og stjórnendur Óperudaga. Fréttablaðið/Eyþór
Þær Ása Fanney Gestsdóttir og Guja Sandholt óperusöngvarar eru listrænir stjórnendur Óperudaga í Reykjavík og hafa veg og vanda af viðamikilli og fjölbreyttri dagskrá hátíðarinnar. Ása Fanney bjó og starfaði við góðan orðstír sem mezzósópransöngkona í Þýskalandi í tólf ár áður en hún flutti heim til Íslands. Hún hefur starfað við söng og sjálfstætt undanfarin ár við ýmis verkefni í menningarlífinu. Guja Sandholt býr bæði í Reykjavík og Amsterdam og starfar eins og Ása bæði að skipulagningu menningarviðburða og sem söngkona. Um þessar mundir syngur hún til dæmis stundum hlutverk Juliu Child í Bon Appétit! Ása Fanney og Guja hafa staðið í ströngum undirbúningi vegna hátíðarinnar í rúmt ár. Þetta er í annað skipti sem hátíðin er haldin en árið 2016 var hún haldin í Kópavogi. Guja: „Við ætlum að breyta Reykjavík í óperu-, leik- og söngsvið í tvær vikur og það verða alls kyns mismunandi söngviðburðir í gangi fyrir fólk á öllum aldri. Við verðum úti um alla Reykjavík. Til dæmis í Safnahúsinu, Hörpu, Árbæjarlaug og Gerðubergi. Þá verða skipulagðar heimsóknir í skóla tengdar hátíðinni. Við létum semja óperu fyrir börn. Hún heitir Plastóperan og er eftir Gísla Jóhann Grétarsson. Árni Kristjánsson sem hefur mikið unnið með börnum og kennt þeim leiklist gerði skemmtilegt handrit sem fjallar um þetta málefni; umhverfisvernd og plast. Hann kemur skilaboðunum áfram án þess að vera að benda með fingrinum. Mjög skemmtilegt og eitthvað sem bæði börn og fullorðnir geta haft gaman af. Plastóperan verður sýnd í Safnahúsinu sunnudaginn 21. október og aðgangur verður ókeypis.“ Markmið þeirra með hátíðinni er að kynna betur óperu og klassískan söng fyrir Íslendingum. Ása Fanney: „Við viljum stækka áhorfendahóp óperunnar og bjóða upp á viðburði sem eru ekki eins formfastir og stórir og fólk kannski þekkir eða heldur að ópera sé alltaf. Þetta eru margir stuttir viðburðir og aðgengilegir. En svo verða líka hefðbundin verk á borð við Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson í Hörpu. Við nutum þess að fá veglega styrki úr norrænum sjóðum þannig að hingað eru að koma nokkuð margir norrænir þátttakendur.“ Bæði Ása Fanney og Guja syngja á hátíðinni. Ása Fanney syngur á móti Aroni Axel Cortes í Trouble in Tahiti. Guja gengur til liðs við Barokkbandið Brák ásamt Hrafnhildi Árnadóttur Hafstað í Fríkirkjunni og syngur Händel. Ása Fanney: „Markmiðið með hátíðinni er líka að búa til nýjan starfsvettvang fyrir söngvara og vekja athygli á þeim mikla mannauði sem við búum yfir. Guja: Margir óperusöngvarar flytja út og festast svo þar. Það þarf meiri grósku í óperusenuna á Íslandi og við viljum stuðla að því. Íslendingum gefst á hátíðinni færi á að hlusta á ýmsa framúrskarandi íslenska söngvara og núna um helgina koma bæði Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari fram á einsöngstónleikum í Hannesarholti. Bjarni Thor tekur einmitt um þessar mundir þátt í uppsetningu á Niflungahrings Wagners í Þýskalandi.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Fleiri fréttir Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Auður segir skilið við Gímaldið Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Frumsýning á Vísi: Skoppa og Skrítla bjóða krökkunum í jólapartý Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Sjá meira