Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að hin tímabundna undanþága njóti nú þegar stuðnings meirihluta NO skuldabréfaeigenda eða um 85% þeirra.
Félagið birti í dag uppgjör þriðja ársfjórðungs sem staðfesti að fjárhagsleg skilyrði voru ekki uppfyllt.
Hefja skriflegt ferli og óska eftir undanþágu
Í dag gaf Icelandair umboðsmanni skuldabréfaeigenda, Nordic Trustee & Agency AB, fyrirmæli um að hefja skriflegt ferli þar sem óskað verður eftir formlegri undanþágu.Félagið hefur einnig hafið viðræður við eigendur IS skuldabréfanna og gerir ráð fyrir að komist verði að samkomulagi með sams konar langtímalausn vegna bréfanna. Nema þau 24 milljónum dala eða um þremur milljörðum íslenskra króna.
Þrátt fyrir brot á fjárhagslegum kvöðum er fjárhagsstaða Icelandair Group sterk en handbært fé og markaðsverðbréf félagsins námu 184 milljónum Bandaríkjadala, rúmlega 22 milljörðum króna, hinn 30. september.
Hagnaður á þriðja ársfjórðungi nam 62 milljónum Bandaríkjadala eða um sjö milljörðum íslenskra króna. Eigið fé nam 575 milljónum Bandaríkjadala, um 69 milljörðum íslenskra króna, og eiginfjárhlutfall félagsins var 36%.
Lakari sætanýting
„Afkoma þriðja ársfjórðungs lækkar milli ára en er í samræmi við afkomuspá sem gefin var út í lok ágúst. EBITDA nam alls 115 milljónum USD, 41 milljón USD lægri en á þriðja ársfjórðungi 2017. Hækkun olíuverðs, lág meðalfargjöld og lakari sætanýting eru helstu skýringar á verri afkomu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.„Gripið hefur verið til fjölmargra aðgerða til að bæta samkeppnishæfni félagsins og vega upp á móti kostnaðarhækkunum, ekki síst vegna hækkunar á eldsneytisverði. Í maí 2019 hefst flug í nýjum tengibanka á Íslandi meðfram núverandi tengibanka leiðakerfisins með það að markmiði að skapa félaginu ný tækifæri til vaxtar, bæta þjónustu við farþega og auka sveigjanleika. Misvægi í sætaframboði milli N-Ameríku og Evrópu hefur verið leiðrétt í flugáætlun næsta árs. Sölu- og markaðsstarf félagsins hefur verið endurskipulagt. Áhersla er lögð á að styrkja tekjustýringu félagsins og er innleiðing á nýju tekjustýringarkerfi vel á veg komin. Sjálfvirknivæðing ferla, notkun stafrænna lausna ásamt eflingu viðbótartekna er í forgangi. Þá er betri nýting starfsfólks og allra rekstrarþátta lykilatriði í framtíðarekstri félagsins.
Verkefni okkar er skýrt, það snýst um að bæta rekstrarafkomu félagsins á heilsársgrunni. Þar eru fjölmörg tækifæri til staðar bæði hvað varðar tekjur og gjöld. Við erum sannfærð um að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til og framundan eru muni skila sér í bættri afkomu Icelandair Group til framtíðar.“