Harry Potter stjörnurnar þá og í dag Stefán Árni Pálsson skrifar 8. nóvember 2018 15:30 Emmu Watson ,Daniel Radcliffe og Rupert Grint á sínum tíma.
21 ár er liðið síðan fyrsta bókin um galdrastrákinn Harry Potter kom út. J.K. Rowling fékk hugmyndina að sögunni um munaðarleysingjann sem þurfti að bjarga heiminum í lest á milli London til Manchester. Handritið að bókinni var tilbúið árið 1995 en bókin kom ekki út fyrr en 1997. Flestir útgefendur höfðu litla trú á sögunni en forlagið Bloomsbury tók hana upp á sína arma og kom Harry Potter og viskusteinninn út þann 26. júní árið 1997. Fyrsta upplagið var einungis 500 eintök. Síðan þá hafa yfir 450 milljón eintök selst af bókunum um Harry Potter, drenginn sem lifði af.Stjörnur eftir myndirnar áttaÁtta kvikmyndir hafa verið gerðar eftir sögunum, eitt leikrit og fjórir skemmtigarðar. Átta kvikmyndir voru gerðar úr bókunum sjö sem gerðu þrjú bresk ungmenni að kvikmyndastjörnum, þau Daniel Radcliffe, Emmu Watson og Rupert Grint. Alls hafa myndirnar þénað um 8 milljarða Bandaríkjadala. Fjölmargir leikarar léku í kvikmyndunum átta og er gaman að sjá hvernig þessi leikarar líta út í dag, 17 árum eftir að fyrsta kvikmyndin kom út. Á laugardaginn verður fyrsta Harry Potter myndin sýnd á Stöð 2 og síðan verða allar myndirnar um Potter sýndar á Stöð 2 á hverjum laugardegi til 28. desember. Myndirnar eru alls átta og kom fyrsta myndin út árið 2001 og sú síðasta árið 2011. Hér að neðan má sjá hvernig helstu leikararnir úr Harry Potter líta út í dag og hægt er að bera þá saman við útlit þeirra þegar þeir komu fram í kvikmyndunum. Fox News tók saman.Tom Felton krækti í hlutverk Draco Malfoy sem er mikill óvinur Harry Potter. Hann hefur augljóslega breyst mikið á öllum þessum tíma.Daniel Radcliffe leikur sjálfan Harry Potter en að undanförnum árum hefur hann einbeitt sér mest að því að koma fram á sviði í leikhúsum um heim allan.Matthew Lewis fer með hlutverk Neville Longbottom og hefur hann heldur betur breyst í gegnum árin. Hann til að mynda lék í kvikmyndinni Me Before You árið 2016 en fer með mjög stórt hlutverk í Harry Potter myndunum.Emma Watson fer með hlutverk Hermione Granger í myndunum og var hún aðeins tíu ára þegar hún fór í prufu fyrir Harry Potter. Hún hefur líklega náð lengst af öllum leikurunum sem léku í myndunum og fór með aðalhlutverkið í endurgerðinni af Beauty and the Beast sem kom út árið 2017.Rupert Grint hafði aðeins komið fram í einu skólaleikriti þegar hann fékk hlutverkið sem Ron Weasley í myndunum. Hann hefur verið að leika í þáttunum Snatch.Bonnie Wright fer með hlutverk Ginevra Molly Weasley sem er yngri systir Ron Weasley í myndunum. Hún hefur verið að tala fyrir karakter í My Dad Is Scrooge undanfarin ár.
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Fleiri fréttir Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Sjá meira