
„Foreldrar þeirra opnuðu hótelið og veitingastaðinn fyrir um 48 árum svo þeir hafa lifað og hrærst í þessu frá því að þeir voru smápattar. Þeir eru spenntir fyrir Íslandsheimsókninni og hafa sett saman sex rétta matseðil, en á honum má meðal annars finna smokkfisksbleks-canneloni, djúpsteikt fyllt lambakonfekt og lasagna með svörtum trufflum og koma þeir einmitt með nokkur kíló af ítölskum trufflum með sér fyrir þann rétt,“.
Massimiliano og Matteo eru þekktir fyrir að blanda saman hefðbundnum og nútímalegum aðferðum í eldhúsinu og leggja mikið úr því að hráefnið sem þeir vinna með sé eins ferskt og völ er á.
„Þeir eru alvöru og ég verð að viðurkenna það að ég hlakka mikið til að borða hjá þeim,“ segir Bergdís.
Frekari upplýsingar og borðapantanir má finna inni á apotekrestaurant.is.
