Upprisa Ross Barkley Benedikt Bóas skrifar 3. nóvember 2018 13:00 Barkley er kominn aftur í enska landsliðið og byrjaði leikina gegn Króatíu og Spáni í Þjóðadeildinni og spilaði vel.
Ross Barkley hefur sýnt það í upphafi tímabilsins að það er kannski eitthvað til í því að hann sé góður í fótbolta. Barkley var talinn einn efnilegasti leikmaður Englands samkvæmt fjölmiðlum og var mikið látið með unga guttann frá Liverpool. Meistarinn frá Katalóníu, Xavi, sagði árið 2014 að hann gæti vel spilað fyrir Barcelona. Svo góður væri hann. Barkley gekk í raðir Chelsea frá Everton í janúar og fann sig ekki undir stjórn Antonio Conte. Ferill hans byrjaði ekki sérstaklega vel hjá Chelsea því fyrsti leikur hans var gegn Arsenal 25. janúar og Barkley komst á bekkinn. Brassinn magnaði, Willian, meiddist eftir hálftíma leik. Barkley var settur inn á og strögglaði enda hafði hann verið meiddur í rúmar átta vikur á undan. Eftir leikinn sagði Conte: „Það er ekki auðvelt þegar einn besti leikmaðurinn þinn meiðist og það eina sem ég hafði á bekknum var Ross Barkley.“ Fjölmiðlar tóku einnig eftir því að Barkley var lengi að koma inn á. Þegar Willian meiddist og lagðist í grasið byrjaði Barkley að hita upp. Conte vildi setja hann strax inn á en Barkley tók sinn tíma í upphitunina. Alls öskraði Conte á hann tíu sinnum að gera sig kláran. Conte er ekki sá þolinmóðasti og blaðamaðurinn Paul Brown, sem sat nálægt, tísti um að Conte hefði tekið hárþurrkuna á Barkley. Aðrir fjölmiðlamenn á leiknum tístu um að Barkley hefði tekist hið ótrúlega. Að fá skömm í hattinn áður en hann snerti boltann.Barkley er kominn aftur í enska landsliðið eftir fjarveru. Hann lék sinn fyrsta landsleik haustið 2013 og var í enska hópnum sem fór á HM 2014.Þar með var ferill Barkleys nánast búinn hjá Chelsea áður en hann byrjaði. Vissulega spiluðu meiðsli einnig inn í. En Barkley þraukaði og Conte var rekinn. Annar Ítali, Maurizio Sarri, var ráðinn og Barkley var staðráðinn í að sanna að það væru enskir töfrar í skónum. Eðlilega var hann ekki valinn í HM-hóp Englands en nýtti sumarið til vinnu. Hann slakaði lítið á heldur fékk þrekþjálfara Chelsea til að vera með sig í prógrammi og horfði á leiki með Napoli. Hann hefur nefnilega aldrei verið þekktur fyrir sitt vinnuframlag inni á vellinum en glöggir áhorfendur tóku eftir því eftir leikinn gegn Burnley að hann hljóp rétt undir 12 kílómetrum og var nánast jafn N’Golo Kante. Þegar tölfræði hans er skoðuð kemur í ljós að hann er að hlaupa um einum og hálfum kílómetra lengra í hverjum leik með Chelsea á þessu tímabili en hann gerði hjá Everton. Með betra formi virðist Barkley líka taka betri ákvarðanir inni á vellinum. Það er ekki langt, rúmt eitt og hálft ár, síðan knattspyrnuspekingurinn Graeme Souness sagði hann vera eins og barn á leikvelli. Í raun væri allt sem hann gerði rangt. „Hann rekur boltann þegar hann á að senda boltann og sendir hann þegar hann á að rekja boltann. Ákvörðunartaka hans er átakanleg,“ sagði Souness og dró hvergi undan, ekki frekar en fyrri daginn.Ross Barkley gæti orðið gríðarlega mikilvægur fyrir enska landsliðið á komandi árum sagði Jamie Carragher í þættinum Monday Night Football á mánudaginn.Þótt hann sé ekki alltaf í byrjunarliðinu hefur Barkley komið við sögu í flestum leikjum Chelsea á tímabilinu. Og hann spilar alltaf betur og betur. Barkley hefur skorað í síðustu þremur leikjum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, síðasti enski leikmaðurinn sem gerði það í búningi Chelsea var sjálfur Frank Lampard. Barkley er eins og flestir vita með gamla númerið hans Lampards og hver veit nema hann gæti orðið jafn stórt nafn og Lampard á Stamford Bridge. Það eru nefnilega ekki mörg mörkin sem aðrir miðjumenn Chelsea munu skora í vetur. Það er staðfest. Kante mun ekki skora mörg og Íslandsvinurinn Jorginho er ekki mikið að pota inn mörkum. Mateo Kovacic hefur skorað 13 mörk í deildarkeppnum á ferlinum og þá eru ekki margir eftir. Barkley þarf því að skora og helst komast yfir 15 mörk ef Chelsea ætlar að eiga raunhæfan möguleika á titlinum. Því ekki eru framherjarnir heldur að skora. Barkley hefur skorað mest átta mörk á tímabili. Það var tímabilið 2015/2016. Boltinn sem Sarri vill spila virðist henta Barkley ágætlega. Þó að Sarri eigi vissulega einhvern hlut að máli þá var það Barkley sjálfur sem ákvað að taka örlögin í sínar hendur og lagði eitthvað á sig. Kom í góðu standi á undirbúningstímabilið og vissi hvað Sarri væri að meina. Það er því honum sjálfum að þakka að það gengur betur núna en áður.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Íslenski boltinn Í beinni: Arsenal - Nottingham Forest | Fyrsti leikurinn undir stjórn Postecoglou Enski boltinn Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Fótbolti Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Fótbolti Dagskráin í dag: Enska úrvalsdeildin aftur af stað eftir hlé Sport Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur Enski boltinn Brynjólfur leikmaður mánaðarins í Hollandi Fótbolti Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Enski boltinn „Þeir sem standa sig betur hreppa hnossið“ Íslenski boltinn Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Sport Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Nottingham Forest | Fyrsti leikurinn undir stjórn Postecoglou Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur Staðfestir að Bayindir verði í markinu gegn Man City Delap gæti verið frá fram í desember Grealish valinn leikmaður mánaðarins í fyrsta sinn Viðhafnarútsending af Doc Zone: Fimm leikir í enska og lokaumferðin í Lengjunni „Báðir með svona Manchester United æxli í heilanum“ Slot í skýjunum eftir ákvörðun þjálfara Svía Er hluti af leikmannahópnum þrátt fyrir að vera í fangelsi Um hnífsárásina sem breytti lífi hans: „Hluti af mér er horfinn“ Engin stig dregin af Chelsea Tyrkneska félagið staðfestir komu Onana Þjálfara kvennaliðs Sheffield United vikið tímabundið frá störfum Chelsea ákært fyrir 74 brot í eigendatíð Abramovich Fertugur Fabianski beðinn um að mæta aftur Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda Ange tekinn við Forest: „Hefur sýnt og sannað að hann geti unnið titla“ Liverpool hyggst fá Guéhi frítt Postecoglou að taka við Forest Nuno rekinn frá Forest Segir að treyja Man United sé þung byrði Man City og úrvalsdeildin náð sáttum varðandi auglýsingasamninga „Tottenham Hotspur er ekki til sölu“ Rúrik segir að Füllkrug vilji ekki láta laga tennurnar í sér Gyökeres vitni í réttarhöldum Segir að Liverpool-menn muni sennilega aldrei jafna sig á fráfalli Jota Orðin dýrust í sögu kvennaboltans Sjá meira