Jesus sveik lærisveininn Valur Páll Eiríksson skrifar 1. október 2026 11:01 Cristiano Ronaldo fór heim í fússi. Getty/Omar Vega Portúgalskir fjölmiðlar loga vegna brotthvarfs stórstjörnunnar Cristiano Ronaldo úr landsliðshópi þess í miðju verkefni. Sáttafundir milli hans og landsliðsþjálfarans fóru út um þúfur og hann fór heim í fússi.
Ronaldo var ósáttur við að þurfa að sitja á varamannabekknum allan leikinn við Noreg á sunnudaginn var og kvartaði við forseta portúgalska knattspyrnusambandsins. Sá kom til Kaupmannahafnar í gær, hvar Portúgalir mæta Dönum í kvöld, til að reyna að miðla málum milli Ronaldo og landsliðsþjálfarans Jorge Jesus, án árangurs. Ronaldo stökk í kjölfarið upp í einkaþotu sína á Kastrup og flaug á brott. Blaðamaðurinn Edu Aguirre, vinur Ronaldo, kemur honum til varna eftir meint frekjukast stórstjörnunnar og segir um svik af hálfu þjálfarans Jesus að ræða. „Á fundinum í gær bað Jorge Jesus Ronaldo afsökunar á vanvirðingunni sem hann sýndi honum með því að láta hann hita upp í hálftíma án þess að fá að spila. Jesus sagðist einnig ætla að biðja Ronaldo afsökunar opinberlega og viðurkenna mistök sín,“ „Jesus stóð ekki við þessi orð sín heldur fór á fréttamannafund og laug. Það er ástæða þess að Ronaldo springur. Honum fannst hann svikinn,“ segir Aguirre. Jesus var áður þjálfari Ronaldo hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu þar sem samstarf þeirra var gott. Hann tók við Portúgal eftir HM í sumar og tók aðeins tvo leiki að flosna upp úr samstarfi þeirra hjá portúgalska liðinu. „Ég mun upplýsa portúgölsku þjóðina um hvað fór raunverulega fram þegar tíminn er réttur. Núna vil ég óska portúgalska landsliðinu og öllum liðsfélögum mínum góðs gengis í framhaldinu,“ sagði Ronaldo í yfirlýsingu sem hann birti á samfélagsmiðlum í gær þar sem hann tilkynnti jafnframt um brottför sína úr yfirstandandi verkefni. Danmörk og Portúgal eigast við í Kaupmannahöfn klukkan 18:45 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay.
Þjóðadeild karla í fótbolta Portúgalski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Sjá meira