Helenu vantaði aftur bara eina stoðsendingu í einstaka þrennu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2018 17:00 Helena Sverrisdóttir. Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, var ótrúleg nálægt því að ná þrefaldri tvennu í leiknum á móti Bosníu í Laugardalshöllinni í gær. Helena endaði leikinn með 22 stig, 14 fráköst og 9 stoðsendingar. Hildur Björg Kjartansdóttir var líka farin að nálgast þrennuna í leiknum en miðherjinn var með 27 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar í leiknum. Þessar tvær frábæru körfuboltakonur voru því saman með 49 stig, 25 fráköst og 16 stoðsendingar í Höllinni í gær. Helena var komin með fimm stoðsendingar strax eftir fyrsta leikhluta og sjö stoðsendingar í hálfleik en hún hélt áfram að skapa fjölda færa fyrir liðsfélaga sína í seinni hálfleiknum sem náðu bara ekki að nýta skotin sín nægilega vel. Þetta er í annað skiptið í undankeppninni sem Helenu vantar aðeins eina stoðsendingu í þrennuna en í fyrsta leiknum á móti Svartfjallalandi þá var hún með 18 stig, 10 fráköst og 9 stoðsendingar. Samkvæmt tölfræðivef undankeppninnar á heimasíðu FIBA náði enginn leikmaður þrennu í undankeppninni. Helena er ofarlega á tölfræðilistunum. Hún endaði í 3. sæti í stigaskori með 22,7 stig í leik og varð í 4. sæti í stoðsendingum með 5,8 í leik. Helena varð ennfremur fjórtándi frákastahæsti leikmaður undankeppninnar með 8,5 í leik.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira