Körfubolti

Grænn Rúnar dró Grinda­vík

Valur Páll Eiríksson skrifar
Rúnar Ingi ræddi Grindavíkurliðið í upphitunarþætti Körfuboltakvölds kvenna. Hann er sjálfur Njarðvíkingur og þeim grænklæddu er spáð titlinum.
Rúnar Ingi ræddi Grindavíkurliðið í upphitunarþætti Körfuboltakvölds kvenna. Hann er sjálfur Njarðvíkingur og þeim grænklæddu er spáð titlinum. Guðmundur/Vísir

Grindavík er spáð góðum árangri á komandi leiktíð í Bónus deild kvenna í körfubolta. Njarðvíkingum er spáð titlinum en Njarðvíkingurinn Rúnar Ingi Erlingsson spáir Grindavík öðru sætinu.

Njarðvík, Grindavík og KR eru talin líklegust til árangurs af sérfræðingum Körfuboltakvölds sem hituðu upp fyrir tímabilið í sérstökum upphitunarþætti í gær.

Grindavík og Njarðvík háðu hatrammlega baráttu í úrslitakeppninni í fyrra. „Þær eru einum leikhluta frá því að sópa Njarðvík í sumarfrí,“ segir Rúnar Ingi. „En þær voru þungar og þreyttar og breiddin var lítil.“

Klippa: Grænn Rúnar dró Grindavík

Grindavík hefur breikkað hópinn síðan í fyrra og Grindvíkindum spáð betri árangri en á síðasta ári.

Umræðuna má sjá í spilaranum að ofan.

Leikir kvöldsins í Bónus-deild kvenna

  • 19:15 KR - Stjarnan (Sýn Sport Ísland)
  • 19:15 Ármann - Grindavík (Sýn Sport Ísland 2)
  • 19:15 Tindastóll - Keflavík (Sýn Sport Ísland 3)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×